Skoðun

Íslensku trixin

Bolli Héðinsson skrifar
Það er ef til vill að bera í bakkafullan lækinn að vitna í fleyg orð Laxness um að Íslendingar „... verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarnamáls“, en því miður eiga þau allt of oft við. Nýleg dæmi um þetta opinberuðust okkur á vordögum.

Æskilegt væri að þurfa ekki að styðjast við vísitölu þegar lán eru tekin til dæmis til húsnæðiskaupa. Þannig er þessu háttað í nágrannalöndum okkar. Hvað hefur mönnum helst dottið í hug til að breyta þessu? Jú, að banna vísitölutryggingu. Í þeirri umræðu er aldrei minnst á að slíkt bann tæki ekki til þegar tekinna lána svo hér yrði aðeins um bann við vísitölutryggðum lánum til framtíðar.

Verðbólguálag umfram verðbólgu

Ef af banninu yrði, hvernig skyldi þá vöxtum á lánum framtíðarinnar verða háttað? Í ljósi harmsögu íslensku krónunnar, sem er nú innan við hálft prósent af verðgildi dönsku krónunnar, sem hún var á pari við þegar leiðir þeirra skildu fyrir um 95 árum, er nokkuð ljóst að lánveitendur teldu sig þurfa einhvers konar tryggingu fyrir virðisrýrnun krónunnar. Líklegast er að lánveitendur reyni að áætla verðbólgu og miða vexti við það. Svo mundu þeir telja sig þurfa að hafa borð fyrir báru vegna óvissu um áætlaða verðbólgu og bæta því ofan á vextina. Afar hæpið er að útkoman verði lántakandanum hagstæð heldur að fjármagnskostnaður muni frekar hækka. Enda sýnir það sig að vinsælustu lán til húsnæðiskaupa eru verðtryggð lán, með kostum þeirra og göllum, þó svo að óverðtryggð lán séu í boði.

Í umræðunni er aldrei minnst á að allt tengist þetta íslensku krónunni, örmynt, útgefinni af örlítilli þjóð og hvergi gjaldgengri utan landsteina hennar. Þar er sama hvort eiga í hlut samtök atvinnulífs, sem virðast eiga í trúnaðarsambandi við söfnuð sem finnur flestu því sem kemur að utan allt til foráttu, eða vígreifir forystumenn einstakra verkalýðsfélaga sem einnig koma sér hjá að tala um kjarna máls, fílinn í herberginu, íslensku krónuna og áhrif hennar á afkomu fjölskyldna og fyrirtækja.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×