Matur

Sveppi og Pétur gerðust vegan með Guðrúnu Sóleyju

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Guðrún Sóley, Sveppi og Pétur byrjuðu á því að búa til sína eigin brauðteninga.
Guðrún Sóley, Sveppi og Pétur byrjuðu á því að búa til sína eigin brauðteninga. Skjáskot/Stöð 2

Í þriðja þætti seríunnar Tveir á teini fetuðu Pétur og Sveppi nokkuð ótroðnar slóðir, að minnsta kosti frá þeirra bæjardyrum séð, og grilluðu veganrétt.

Þeim til halds og trausts var fjölmiðlakonan Guðrún Sóley Gestsdóttir en uppskriftin af fylltum portóbellósveppum er hennar hugarfóstur. Klippuna úr þættinum má sjá hér að neðan auk uppskriftarinnar.

Fylltir portóbellósveppir

Innihald:

Portóbellósveppir

Rifinn VioLife ostur

Ferkst rósmarín

Brauðteninga

Salt og pipar

Ólífuolía



Guðrún Sóley, Sveppi og Pétur byrjuðu á því að búa til sína eigin brauðteninga þar sem margar tegundir brauðteninga úr búð innihalda egg, smjör eða ost. Þau brugðu því á það ráð að búa til brauðteninga úr tómatbrauði úr Hagkaup, sem gert er með eftirfarandi hætti:

Skerið brauðið í litla búta og raðið á grillbakka. Þið ráðið hvort þið hafið skorpuna með til að fá þéttari teninga.

Brauðið þarf bara nokkrar mínútur á heitu grilli til þess að þurrkast upp. Það er í raun ekki lengri tími en tekur að útbúa restina af réttinum.

Byrjið á því að taka stöngulinn úr portóbellósveppunum til að gera vasann sem fyllingin fer í. Það má nota teskeið til þess að skafa út aðeins stærra svæði ef fólk vill.

Blandið saman í skál einum desilítra af olífuolíu við smá salt og pipar. Saxið fínt niður 5-6 sprota af rósmarín og bætið við olíuna ásamt u.þ.b. einum bolla af rifna ostinum. Hrærið vel saman.

Þá ættu brauðteningarnir að vera til á grillinu. Takið sirka tvo lófa af brauðteningum, saxið enn smærra og hrærið við ostablönduna Mokið þessu í sveppina og vefjið þá í álpappír. Þeir fara svo á grillið í um það bil 10 mínútur.

Hægt er að bæta við hvaða kryddum sem er í olíublönduna fyrir þessa sveppi t.d. fara hvítlaukur og/eða chilipipar einstaklega vel við tómatbrauðteningana.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.