Matur

Lambaskífurnar slógu í gegn hjá Sveppa og Pétri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þeir félagar spá því að lambaskífur verði nýjasta æðið hjá Íslendingum.
Þeir félagar spá því að lambaskífur verði nýjasta æðið hjá Íslendingum.

Í öðrum þætti af Tveir á teini á Stöð 2 fengu Pétur Jóhann og Sveppi Villa naglbít með sér í lið og grilluðu lambaskífur.

Uppskriftin er fyrir unnendur lambakjöts sem eru að leita að fljótlegum og fjölbreyttum rétti. Þetta er fullkomið nart í sumar, þá sérstaklega yfir HM og virkar sem gómsætt fingrafæði á par við buffalóvængi.

Undirstaðan er lambahryggur sem er skorinn í örþunnar lambaskífur.

Lambaskífur

Takið einn frosinn lambahrygg úr kælinum í búðinni og biðjið kjötborðið að skera hann í sundur. Fyrst endilangt eftir miðju og svo þvert í eins næfurþunnar sneiðar og þeir geta eða um það bil 4 millimetra.

Úr einum hrygg fáið þið aragrúa af skífum. Við skiptum okkar skífum í fjóra hluta til þess til að prófa fleiri bragðtegundir.

Veljið ykkur marineringar sem þið viljið nota. Í Tveir á teini notuðu strákarnir brögð frá Austurlöndum fjær og settu eftirfarandi sósur og krydd á hvern fjórðung:

Tikka masala

Teriyaki

Mango og chili

Salt og pipar

Skífurnar láu í kryddunum í um það bil hálftíma til þess að taka í sig bragðið og svo var þessu skellt á sjóðandi heitt grill. Þetta er grillað á örskammri stund á báðum hliðum og skífurnar mega alveg verða stökkar.

Berið þær fram strax og jafnvel með eftirlætis kaldri sósunni ykkar til þess að dýfa í. Borðið með fingrunum og passið ykkur á beinunum.


Tengdar fréttir








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.