Matur

„Jackfruit“ naggar með hvítlaukssósu

Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar
Naggar.
Naggar.

„Jackfruit“ naggar með hvítlaukssósu

1 pakki rifið jackfruit, í kryddlegi eða úr dós (fæst t.d. í Hagkaupum)

120 g fræ- og hnetublanda, til dæmis pistasíuhnetur, sesam- og hampfræ



Sósa

2 dl vegan majónes (t.d. hægt að nota Vegannaise sem fæst í Krónunni og Hagkaupum)

1-2 geirar hvítlaukur, pressaðir

Skvetta af sítrónusafa

Salt og pipar

Söxuð steinselja

Ef þið viljið ostakeim í þessa sósu er gott að setja drjúgan skammt af næringargeri saman við.



Aðferð



Hitið ofninn í 180°C. Saxið fræin og hneturnar mjög smátt, gott er að nota matvinnsluvél í verkið. Komið blöndunni fyrir í skál. Klípið smá skammt af rifnu jackfruit og mótið kúlu með höndunum, veltið vandlega upp úr fræblöndunni og komið fyrir á bökunarpappírsklæddri plötu. Grillið síðan jackfruitbitana í 18-20 mínútur. Á meðan er gott að útbúa hvítlaukssósuna – blandið einfaldlega öllum innihaldsefnum saman í skál, hrærið og kælið örlítið. Berið fram og njótið.

Uppskrift:Guðrún Sóley Gestsdóttir








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.