Matur

Kjúklingaspjót að hætti Tobbu Marinos

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tobba er frábær í eldhúsinu.
Tobba er frábær í eldhúsinu.

Rithöfundurinn og matgæðingurinn Þorbjörg Marinosdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinos, gaf á dögunum út Disney matreiðslubók.

Um er að ræða bók með 100 vinsælustu uppskriftirnar úr Disney-matreiðslubókunum. 

Hér að neðan má sjá ómótstæðilega uppskrift hvernig maður reiðir fram girnileg kjúklingaspjót.  

Kjúklingaspjót með gómsætri hnetusmjörssósu

Fyrir 4

800 g kjúklingakjöt, bringur eða lundir

1 laukur

2 hvítlauksrif

½ rautt chillí, fræhreinsað*

2 msk kókosolía

150 g hnetusmjör

100 ml kókosmjólk (úr dós)

1 dl appelsínusafi

100 g ferskt kóríander

2 msk sojasósa

1 límóna, safinn

Grillpinnar

1 dl salthnetur

Salt

Bleytið grillpinnana svo síður kvikni í þeim á grillinu. Ef ekki á að grilla má baka kjúklinginn í ofni á grillstillingu.

Saxið laukunn, hvítlauk og chillí mjög smátt og steikið við miðlungs hita upp úr kókosolíu uns laukurinn er tekin að gyllast og eldhúsið ilmar. Setjið öll innihaldsefnin nema kjúklinginn og kóríanderið í pottinn með laukblöndunni og hrærið vel saman. Athugið að sósan þykkist þegar hún kólnar.Skiptið sósunni í tvær skálar.

Saxið kóríanderið niður og bætið í skálarnar.  Notið annan skammtinn til að bera vel á spjótin en geymið hinn til bera fram með kjúklingnum.

Skerið kjúklinginn í bita og þræðið upp á grillpinnana. Berið sósuna á og látið marinerast í að lágmarki 1 klst en að hámark sólahring. Saltið spjótin og grillið kjúklinginn þar til hann er gegn steiktur.

Hellið auka sósu yfir spjótin áður en þau eru borin fram og skreytið með kóríander og smátt söxuðum salthnetum.

*Athugið að chillíaldin eru mildari eftir því sem þau eru stærri. Farið varlega þegar þau eru skorin því aldinið og fræinn eru mjög sterk og er afar vont að fá chillísafa eða fræ í augu eða munn og getur slíkt valdið miklum sviða.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.