Skoðun

Orð sem éta mann

Toshiki Toma skrifar
Frá örófi alda hefur allskonar fólk í ólíkum löndum haft trú á því að orð hafi líf og kraft. Við Japanir trúðum að sérhvert orð væri með sinn sérstaka anda. Í kristinni trú hafa orð einnig stórt hlutverk eins og sést t.d. í byrjun Jóhannesarguðspjalls „(...) Orðið var Guð. (...) Í honum var líf og lífið var ljós mannanna.“ Sérhver kristinn maður á að boða Guðs orð með lífi sínu. „Orð“ eru mikilvæg og lífgefandi í kristinni trú.

Jafnvel þótt maður trúi ekki á Krist, er erfitt að vera ósammála því að orð séu mikilvæg og að í þeim búi jákvæður kraftur. Annars hefði fólk ekki geymt þetta máltæki svo lengi sem elstu menn muna: „Penninn er sterkari en sverðið.“ Í orðum býr kraftur, því er einnig mikilvægt að halda í málfrelsi.

En orð geta auðvitað líka verið misnotuð. Orð er hægt að nota ekki bara í jákvæðum tilgangi heldur til að skaða aðra menn, hallmæla eða bölva.

Í kjölfar mótmæla flóttafólks á Austurvelli síðustu daga, hafa mörg skítug og ljót orð verið látin falla á samfélagsmiðlum. „Hyski“, „viðbjóður“, „grýta pakk“, „láta hengja sig“ og svo framvegis. Öllum þessum orðum var varpað fram gagnvart flóttafólki, ekki til fólks í valdastöðum sem getur borið hönd fyrir höfuð sér og andmælt, heldur til flóttafólks sem hefur enga aðra leið til að ávarpa þjóðfélagið nema á samkomu eins og var haldin á Austurvelli.

Sumir hljóta að hafa notað slík orð á meðvitaðan hátt, aðrir gætu hafað notað þau bara ti að fá tilfinningalega útrás. En hvort sem er, skaða hatursorð aðrar manneskjur og samfélag okkar í heild. Mér finnst íslenskt samfélag verða skítugra í hatursorðræðu þessara daga.

Það er ekki allt. Orð sem maður gefur frá sér endurspegla hugmyndarfræði manns, eðli og persónuleika. Þau birta mynd af manni sjálfum. Hvert einasta orð sem við látum frá okkur lýsir hver við erum. Og við erum metin og dæmd með þeim orðum sem við notum um aðra.

Hatursorð skaða og skemma samfélagið en fyrst og fremst skaða þau þann sem lætur þau frá sér. Þau éta hann að innan.

Í Gamla Testamentinu standa þessi orð:

„eins er því farið með orð mitt sem kemur af munni mínum,

það hverfur ekki aftur til mín við svo búið

heldur kemur því til leiðar sem mér þóknast

og framkvæmir það sem ég fel því“ (Jesaja 55:11)

Orð eru gjöf frá Guði. Þess vegna skulum við nota þau á þann hátt sem Guði þóknast.

Höfundur er prestur innflytjenda.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×