Skoðun

Stjórnmálamenn stokki spilin

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Mikilvægt er fyrir stjórnmálamenn að nýta upphaf samdráttarskeiðs í efnahagslífinu til að stokka spilin. Það þarf að kortleggja hvað sé nauðsynlegt í rekstri hins opinbera, hvað megi betur fara, hvað megi missa sín og hvernig létta megi undir með landsmönnum sem standa straum af útgjöldunum með einum eða öðrum hætti. Ef rétt er haldið á spöðunum getur hið opinbera staðið sterkara eftir tiltekt og með skýra sýn á hlutverk sitt. Mistakist það verður róðurinn þyngri. Af þeim sökum ber að fagna því að fjármálaráðherra sagði að velt yrði við hverjum steini í ríkisrekstrinum við gerð endurskoðaðrar fjármálaáætlunar.

Skattbyrði hérlendis hefur farið vaxandi og er með því mesta sem þekkist innan OECD-ríkjanna. Það er nauðsynlegt að stíga stór skref til að draga úr álögunum. Það væri vítamínsprauta fyrir hagkerfið, eykur ráðstöfunartekjur heimila og eflir samkeppnishæfni fyrirtækja.

Þess vegna eru það vonbrigði að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fresta lækkun bankaskatts um eitt ár. Sá skattur er greiddur af landsmönnum og stuðlar að hærra vaxtastigi sem er hátt í alþjóðlegum samanburði.

Sveitarstjórnarmenn hefðu einnig átt að lækka fasteignaskatta þegar fasteignaverð fór stigvaxandi. Þær skattahækkanir eru ósanngjarnar og í engu samhengi við tekjur skattgreiðenda.

Stjórnmálamenn þurfa jafnframt að hafa kjark til að nýta einkarekstur í heilbrigðis- og menntakerfinu í ríkari mæli til að bæta þjónustuna og auka hagkvæmni. Útgjöld til heilbrigðismála munu aukast verulega á næstu 25 árum samhliða því að þjóðin verður æ eldri. Ísland er því miður eftirbátur hinna Norðurlandanna við að nýta einkarekstur á þessum sviðum.

Sömuleiðis væri það búbót fyrir heimilin ef stjórnmálamenn myndu sammælast um að afnema verndartolla í landbúnaði.

Enn fremur þarf að selja ríkisbankana og Flugstöð Leifs Eiríkssonar enda er það sveiflukenndur áhætturekstur sem fer betur í höndum einkaframtaksins. Það er skynsamlegra að nýta fé ríkisins sem er bundið í atvinnurekstri til annarra verkefna. Auk þess ætti að loka peningahítinni RÚV. Nóg er af fréttamiðlum og ef vilji stendur til að styrkja innlenda dagskrárgerð má birta efnið hjá öðrum fjölmiðlum.

Með þessum aðgerðum myndu stjórnmálamenn leggjast á sveif með landsmönnum. Við myndum greiða lægri skatta og minna í vexti, stæði til boða ódýrari matur og öflugra mennta- og heilbrigðiskerfi. Það skiptir enn meira máli nú þegar hægðarleikur er að flytja á milla landa.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×