Dómaraníð stuðningsmanns kostaði Gróttu 50 þúsund krónur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. október 2020 10:56 Stuðningsmenn Gróttu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/hag
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur sektað Gróttu um 50 þúsund krónur vegna ummæla starfsmanns/stuðningsmanns félagsins í útsendingu Gróttu TV frá leik Gróttu og Keflavíkur í Lengjudeild kvenna. Tökumaðurinn blótaði dómara leiksins í sand og ösku eftir sigurmark Keflavíkur. Hann vildi meina að það hefði ekki átt að standa vegna rangstöðu. Grótta baðst afsökunar á ummælunum og harmaði þau. „Hvað ertu að pæla maður. Hún var kolrangstæð, hvaða rugl er þetta?“ sagði tökumaðurinn og var mikið niðri fyrir. „Hvað er að þér maður, ertu ekki að dæma? Hvað ertu að hugsa? Hvernig var þetta ekki rangstaða? Ertu moron? Hvernig getur þú ekki séð að þetta sé rangstaða manneskja? Ertu með dómarapróf?“ Keflavik skoraði vafasamt mark a moti Grottu sem reyndist svo vera löglegt. Upptökumaður GrottaTV var osammala. Þetta er eitt það fyndnasta sem eg hef heyrt i langan tima #waitforit #passion #Lengjudeildin pic.twitter.com/p8DRV2Y03P— Orri Omarsson (@OrriSOmarsson) September 18, 2020 Að mati aga- og úrskurðarnefndar voru ummælin ósæmileg og sköðuðu ímynd íslenskrar knattspyrnu. Þau kostuðu Gróttu 50 þúsund krónur eins og áður sagði.
Íslenski boltinn Lengjudeildin Grótta KSÍ Mest lesið Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti Í beinni: Ísland - Úkraína | Mikilvægur leikur í Innsbruck Handbolti Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sport Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Enski boltinn „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Körfubolti Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Fótbolti Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Fótbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira