Körfuboltafólk sendir frá sér yfirlýsingu: „Getur ekki talist boðlegt“ Anton Ingi Leifsson skrifar 2. desember 2020 22:19 Frá þeim fáum leikjum sem hafa verið leiknir á tímabilinu 2020/2021. vísir/vilhelm Íþróttafólk er orðið þreytt á æfinga- og keppnisbanni sem er við lýði á Íslandi og körfuboltafólk landsins hefur nú sent frá sér yfirlýsingu. Leikmenn í Dominos-deildum karla og kvenna sendu í kvöld frá sér yfirlýsingu þar sem þau skora á stjórnvöld að leyfa æfingar. Pistillinn birtist fyrst á Karfan.is. Æfinga- og keppnisbann hefur verið við lýði á Íslandi síðan í byrjun október og einungis nokkrar umferðir hafa verið leiknir hér á landi síðan í mars. Í síðasta mánuði sendu þjálfarar deildanna frá sér yfirlýsingu og eftir að stjórnvöld ákváðu að lengja núverandi sóttvarnarreglur um eina viku í gær hafa leikmennirnir nú sent frá sér yfirlýsingu. „Við hvetjum til skynsamlegrar lausnar á því hvernig æfingar geti hafist aftur hjá atvinnu- og afreksíþróttafólki og það sem fyrst,“ segir meðal annars í pistlinum. „Það getur ekki talist boðlegt afreksíþróttafólki okkar, sem kemur fram fyrir land og þjóð – sem land og þjóð hreykja sér af – að setja það í þessar aðstæður á meðan það fylgist með keppinautum sínum erlendis æfa og keppa og þar með stinga sig af inni á keppnisvellinum.“ „Frekara æfingabann veldur okkur miklum áhyggjum. Íþróttafólk hefur hvorki aðstöðu til að auka né viðhalda því líkamlega ástandi sem þarf til þess að geta staðið undir því álagi sem fylgir starfi okkar. Verði æfingar ekki leyfðar með góðum fyrirvara, áður en leikir verða leyfðir, er hætt við að íþróttafólk hafi ekki viðunandi tíma til áðurnefndar uppbyggingar og verði því hættara við alvarlegum meiðslum og öðrum langvarandi afleiðingum.“ „Slíkt mun hafa veruleg áhrif á keppnisíþróttir landsins, jafnt sem landslið. Þá er hætt við að binda þurfi enda á keppnir í körfu- og handknattleik, tveimur af stærstu íþróttadeildum landsins, annað leiktímabilið í röð ef æfingar geta ekki fljótlega hafist á ný.“ Í pistlinum er ekki farið fram á að keppni byrji strax heldur að íþrótta- og afrekssfólk fái að æfa. Fjöldi á æfingu mun fylgja þeim fjöldatakmörkunum sem verða í gildi hverju sinni en pistilinn í heild sinni má lesa hér að neðan.
Leikmenn í Dominos-deildum karla og kvenna sendu í kvöld frá sér yfirlýsingu þar sem þau skora á stjórnvöld að leyfa æfingar. Pistillinn birtist fyrst á Karfan.is. Æfinga- og keppnisbann hefur verið við lýði á Íslandi síðan í byrjun október og einungis nokkrar umferðir hafa verið leiknir hér á landi síðan í mars. Í síðasta mánuði sendu þjálfarar deildanna frá sér yfirlýsingu og eftir að stjórnvöld ákváðu að lengja núverandi sóttvarnarreglur um eina viku í gær hafa leikmennirnir nú sent frá sér yfirlýsingu. „Við hvetjum til skynsamlegrar lausnar á því hvernig æfingar geti hafist aftur hjá atvinnu- og afreksíþróttafólki og það sem fyrst,“ segir meðal annars í pistlinum. „Það getur ekki talist boðlegt afreksíþróttafólki okkar, sem kemur fram fyrir land og þjóð – sem land og þjóð hreykja sér af – að setja það í þessar aðstæður á meðan það fylgist með keppinautum sínum erlendis æfa og keppa og þar með stinga sig af inni á keppnisvellinum.“ „Frekara æfingabann veldur okkur miklum áhyggjum. Íþróttafólk hefur hvorki aðstöðu til að auka né viðhalda því líkamlega ástandi sem þarf til þess að geta staðið undir því álagi sem fylgir starfi okkar. Verði æfingar ekki leyfðar með góðum fyrirvara, áður en leikir verða leyfðir, er hætt við að íþróttafólk hafi ekki viðunandi tíma til áðurnefndar uppbyggingar og verði því hættara við alvarlegum meiðslum og öðrum langvarandi afleiðingum.“ „Slíkt mun hafa veruleg áhrif á keppnisíþróttir landsins, jafnt sem landslið. Þá er hætt við að binda þurfi enda á keppnir í körfu- og handknattleik, tveimur af stærstu íþróttadeildum landsins, annað leiktímabilið í röð ef æfingar geta ekki fljótlega hafist á ný.“ Í pistlinum er ekki farið fram á að keppni byrji strax heldur að íþrótta- og afrekssfólk fái að æfa. Fjöldi á æfingu mun fylgja þeim fjöldatakmörkunum sem verða í gildi hverju sinni en pistilinn í heild sinni má lesa hér að neðan. Yfirlýsing frá leikmönnum Dominos deilda karla og kvenna í körfuknattleik varðandi æfingar atvinnu- og afreksíþróttafólks: Leikmenn Dominos deildar karla og kvenna í körfuknattleik vilja hvetja ríkisstjórn Íslands og sóttvarnaryfirvöld til þess að heimila ábyrgar æfingar atvinnu- og afreksíþróttafólks að nýju, á meðan heimsfaraldri stendur. Æfingar eru mikilvægasti þáttur hvers kyns iðkunar. Æfingar byggja upp og viðhalda færni, þoli og þreki – og í tilfelli íþróttafólks fyrirbyggja þær meiðsl. Íþróttafólk hefur nú búið við skerta aðstöðu til æfinga frá 20. október á höfuðborgarsvæðinu, en síðan 1. nóvember annars staðar á landinu. Frekara æfingabann veldur okkur miklum áhyggjum. Íþróttafólk hefur hvorki aðstöðu til að auka né viðhalda því líkamlega ástandi sem þarf til þess að geta staðið undir því álagi sem fylgir starfi okkar. Verði æfingar ekki leyfðar með góðum fyrirvara, áður en leikir verða leyfðir, er hætt við að íþróttafólk hafi ekki viðunandi tíma til áðurnefndar uppbyggingar og verði því hættara við alvarlegum meiðslum og öðrum langvarandi afleiðingum. Slíkt mun hafa veruleg áhrif á keppnisíþróttir landsins, jafnt sem landslið. Þá er hætt við að binda þurfi enda á keppnir í körfu- og handknattleik, tveimur af stærstu íþróttadeildum landsins, annað leiktímabilið í röð ef æfingar geta ekki fljótlega hafist á ný. Ráðleggingar um íþróttaiðkun utandyra, gönguferðir, skokk eða heimaæfingar eru góðar og gildar fyrir almenning til að viðhalda heilbrigðum almennum lífsstíl – en þær eru ekki líklegar til afreka á heimsvísu og því ekki viðeigandi fyrir atvinnu- og afreksíþróttafólk. Það álag og sú tækni, sem hér hefur áður verið minnst á, þarfnast sérútbúinnar aðstöðu, einkum leikvanga í viðunandi stærð. Undanfarin ár hafa íþróttir ítrekað sannað sig sem mikilvægur þáttur í menningu þjóðarinnar. Íslenska þjóðin býr að aragrúa af frábæru íþróttafólki sem hefur ítrekað náð langt í sínum greinum, bæði í einstaklings- og liðsíþróttum – í félagskeppnum innanlands jafnt og á stórmótum erlendis. Heilu bæjarfélögin koma saman til þess að styðja við íþróttafólk sitt sem og öll þjóðin stendur að baki keppnisfólks okkar á alþjóðavettvangi. Íslenskt íþróttafólk, þrátt fyrir smæð lands og þjóðar, gengur ætíð til leiks með þann möguleika fyrir augum að sigra – sama hver mótherjinn er. Sá möguleiki – þessi draumur – fjarlægist með hverjum degi sem við fáum ekki að æfa. Það getur ekki talist boðlegt afreksíþróttafólki okkar, sem kemur fram fyrir land og þjóð – sem land og þjóð hreykja sér af – að setja það í þessar aðstæður á meðan það fylgist með keppinautum sínum erlendis æfa og keppa og þar með stinga sig af inni á keppnisvellinum. Árangur Íslendinga í erlendum íþróttakeppnum er einstakur. Að þjóð sem telur rétt um 360.000 státi af fjölmörgu íþróttafólki sem leikur fyrir erlend félagslið, og mörgum einstaklingum og landsliðum sem keppa í Evrópumótum verður ekki lýst öðruvísi en algjörlega einstöku. Það að neita þessu afreksíþróttafólki að æfa sendir þennan árangur nokkur ár aftur í tímann. Þau sem nú eru á sínum seinustu bestu árum gætu þurft að hætta of snemma. Þau sem eru á sínu blómaskeiði dragast aftur úr. Svo ekki sé minnst á allt það unga og efnilega fólk sem kæmi til með að taka við keflinu missir bæði viðeigandi aðhald sem og handleiðslu þeirra sem eldri eru og því er hætta á brotfalli. Við förum fram á að geta æft aftur til að viðhalda styrk okkar, tækni, þoli og hugarfari – þannig að þegar keppni verður leyfð á ný, þá séum við tilbúin. Afreksíþróttafólk er alvant því að færa fórnir til þess að geta iðkað sína íþrótt, gagnvart persónulegu lífi, námi, öðru starfi og fjölskyldu. Auk þess komum við saman sem lið þar sem samvinna og liðsheild skipta höfuðmáli. Við erum því að sjálfsögðu reiðubúin að færa fórnir og vinna saman í því að finna leið til þess að æfa. Því leggjum við m.a. til eftirfarandi punkta hvað þetta varðar: Við förum ekki fram á keppni í íþróttum okkar fyrr en sóttvarnaryfirvöld telja það fært, aðeins æfingar. Fjöldi á æfingu mun í hvívetna fylgja fjöldatakmörkunum sóttvarnaryfirvalda Ímynd íþróttafólks er að það sé reglusamt, skynsamt, heilbrigt og fyrirmynd annarra. Styðjum við þessa ímynd, setjum upp skynsamlegar leiðir til þess að við getum æft og vinnum saman til að fylgja þeim. Við ítrekum að við erum ekki að fara fram á að hefja keppni að svo stöddu enda er uppsveifla í sýkingum á landinu líkt og fram hefur komið í fréttum að undanförnu. Við hvetjum til skynsamlegrar lausnar á því hvernig æfingar geti hafist aftur hjá atvinnu- og afreksíþróttafólki og það sem fyrst. Fyrirfram þakkir Leikmenn í Dominos deild karla og kvenna
Yfirlýsing frá leikmönnum Dominos deilda karla og kvenna í körfuknattleik varðandi æfingar atvinnu- og afreksíþróttafólks: Leikmenn Dominos deildar karla og kvenna í körfuknattleik vilja hvetja ríkisstjórn Íslands og sóttvarnaryfirvöld til þess að heimila ábyrgar æfingar atvinnu- og afreksíþróttafólks að nýju, á meðan heimsfaraldri stendur. Æfingar eru mikilvægasti þáttur hvers kyns iðkunar. Æfingar byggja upp og viðhalda færni, þoli og þreki – og í tilfelli íþróttafólks fyrirbyggja þær meiðsl. Íþróttafólk hefur nú búið við skerta aðstöðu til æfinga frá 20. október á höfuðborgarsvæðinu, en síðan 1. nóvember annars staðar á landinu. Frekara æfingabann veldur okkur miklum áhyggjum. Íþróttafólk hefur hvorki aðstöðu til að auka né viðhalda því líkamlega ástandi sem þarf til þess að geta staðið undir því álagi sem fylgir starfi okkar. Verði æfingar ekki leyfðar með góðum fyrirvara, áður en leikir verða leyfðir, er hætt við að íþróttafólk hafi ekki viðunandi tíma til áðurnefndar uppbyggingar og verði því hættara við alvarlegum meiðslum og öðrum langvarandi afleiðingum. Slíkt mun hafa veruleg áhrif á keppnisíþróttir landsins, jafnt sem landslið. Þá er hætt við að binda þurfi enda á keppnir í körfu- og handknattleik, tveimur af stærstu íþróttadeildum landsins, annað leiktímabilið í röð ef æfingar geta ekki fljótlega hafist á ný. Ráðleggingar um íþróttaiðkun utandyra, gönguferðir, skokk eða heimaæfingar eru góðar og gildar fyrir almenning til að viðhalda heilbrigðum almennum lífsstíl – en þær eru ekki líklegar til afreka á heimsvísu og því ekki viðeigandi fyrir atvinnu- og afreksíþróttafólk. Það álag og sú tækni, sem hér hefur áður verið minnst á, þarfnast sérútbúinnar aðstöðu, einkum leikvanga í viðunandi stærð. Undanfarin ár hafa íþróttir ítrekað sannað sig sem mikilvægur þáttur í menningu þjóðarinnar. Íslenska þjóðin býr að aragrúa af frábæru íþróttafólki sem hefur ítrekað náð langt í sínum greinum, bæði í einstaklings- og liðsíþróttum – í félagskeppnum innanlands jafnt og á stórmótum erlendis. Heilu bæjarfélögin koma saman til þess að styðja við íþróttafólk sitt sem og öll þjóðin stendur að baki keppnisfólks okkar á alþjóðavettvangi. Íslenskt íþróttafólk, þrátt fyrir smæð lands og þjóðar, gengur ætíð til leiks með þann möguleika fyrir augum að sigra – sama hver mótherjinn er. Sá möguleiki – þessi draumur – fjarlægist með hverjum degi sem við fáum ekki að æfa. Það getur ekki talist boðlegt afreksíþróttafólki okkar, sem kemur fram fyrir land og þjóð – sem land og þjóð hreykja sér af – að setja það í þessar aðstæður á meðan það fylgist með keppinautum sínum erlendis æfa og keppa og þar með stinga sig af inni á keppnisvellinum. Árangur Íslendinga í erlendum íþróttakeppnum er einstakur. Að þjóð sem telur rétt um 360.000 státi af fjölmörgu íþróttafólki sem leikur fyrir erlend félagslið, og mörgum einstaklingum og landsliðum sem keppa í Evrópumótum verður ekki lýst öðruvísi en algjörlega einstöku. Það að neita þessu afreksíþróttafólki að æfa sendir þennan árangur nokkur ár aftur í tímann. Þau sem nú eru á sínum seinustu bestu árum gætu þurft að hætta of snemma. Þau sem eru á sínu blómaskeiði dragast aftur úr. Svo ekki sé minnst á allt það unga og efnilega fólk sem kæmi til með að taka við keflinu missir bæði viðeigandi aðhald sem og handleiðslu þeirra sem eldri eru og því er hætta á brotfalli. Við förum fram á að geta æft aftur til að viðhalda styrk okkar, tækni, þoli og hugarfari – þannig að þegar keppni verður leyfð á ný, þá séum við tilbúin. Afreksíþróttafólk er alvant því að færa fórnir til þess að geta iðkað sína íþrótt, gagnvart persónulegu lífi, námi, öðru starfi og fjölskyldu. Auk þess komum við saman sem lið þar sem samvinna og liðsheild skipta höfuðmáli. Við erum því að sjálfsögðu reiðubúin að færa fórnir og vinna saman í því að finna leið til þess að æfa. Því leggjum við m.a. til eftirfarandi punkta hvað þetta varðar: Við förum ekki fram á keppni í íþróttum okkar fyrr en sóttvarnaryfirvöld telja það fært, aðeins æfingar. Fjöldi á æfingu mun í hvívetna fylgja fjöldatakmörkunum sóttvarnaryfirvalda Ímynd íþróttafólks er að það sé reglusamt, skynsamt, heilbrigt og fyrirmynd annarra. Styðjum við þessa ímynd, setjum upp skynsamlegar leiðir til þess að við getum æft og vinnum saman til að fylgja þeim. Við ítrekum að við erum ekki að fara fram á að hefja keppni að svo stöddu enda er uppsveifla í sýkingum á landinu líkt og fram hefur komið í fréttum að undanförnu. Við hvetjum til skynsamlegrar lausnar á því hvernig æfingar geti hafist aftur hjá atvinnu- og afreksíþróttafólki og það sem fyrst. Fyrirfram þakkir Leikmenn í Dominos deild karla og kvenna
Íslenski körfuboltinn Dominos-deild kvenna Dominos-deild karla Tengdar fréttir Hafa áhyggjur af Ólympíulágmörkum: „Af hverju megum við ekki fara inn?“ Frjálsíþróttafólk, líkt og fleira afreksíþróttafólk, undrar sig á því af hverju það megi ekki æfa í stórum íþróttahöllum. 2. desember 2020 20:10 Fyrirliði körfuboltalandsliðsins með pistil: „Erum að minnka atvinnumöguleika hjá okkar efnilegustu leikmönnum“ Fyrirliði körfuboltalandsliðsins sá sig knúinn til þess að skrifa pistil um stöðuna í æfinga- og keppnismálum hér á landi. 1. desember 2020 22:18 Segir að eitthvað þurfi að láta undan: „Erum sett undir sama hatt og skokkhópar“ Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að hljóðið í hreyfingunni sé ekki gott eftir tíðindi dagsins en þar var tilkynnt að æfinga- og keppnisleyfi verður áfram við lýði hér á Íslandi. 1. desember 2020 19:01 Formaður KKÍ vonsvikinn og reiður með tíðindi dagsins Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var ekkert sérstaklega ánægður með tíðindin sem bárust um hádegið, að gildandi samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins verði áfram við lýði til 9. desember. Það þýðir að íslenskt íþróttafólk, fullorðnir og ungmenni, mega ekki æfa eða keppa eins og undanfarna tvo mánuði. 1. desember 2020 14:01 Æfinga- og keppnisbann enn við lýði Gildandi sóttvarnareglur hafa verið framlengdar til 9. desember. Það þýðir m.a. áframhaldandi bann við æfingum og keppni hjá íslensku íþróttafólki. 1. desember 2020 12:05 Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Handbolti Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Fleiri fréttir Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar Sjá meira
Hafa áhyggjur af Ólympíulágmörkum: „Af hverju megum við ekki fara inn?“ Frjálsíþróttafólk, líkt og fleira afreksíþróttafólk, undrar sig á því af hverju það megi ekki æfa í stórum íþróttahöllum. 2. desember 2020 20:10
Fyrirliði körfuboltalandsliðsins með pistil: „Erum að minnka atvinnumöguleika hjá okkar efnilegustu leikmönnum“ Fyrirliði körfuboltalandsliðsins sá sig knúinn til þess að skrifa pistil um stöðuna í æfinga- og keppnismálum hér á landi. 1. desember 2020 22:18
Segir að eitthvað þurfi að láta undan: „Erum sett undir sama hatt og skokkhópar“ Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að hljóðið í hreyfingunni sé ekki gott eftir tíðindi dagsins en þar var tilkynnt að æfinga- og keppnisleyfi verður áfram við lýði hér á Íslandi. 1. desember 2020 19:01
Formaður KKÍ vonsvikinn og reiður með tíðindi dagsins Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var ekkert sérstaklega ánægður með tíðindin sem bárust um hádegið, að gildandi samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins verði áfram við lýði til 9. desember. Það þýðir að íslenskt íþróttafólk, fullorðnir og ungmenni, mega ekki æfa eða keppa eins og undanfarna tvo mánuði. 1. desember 2020 14:01
Æfinga- og keppnisbann enn við lýði Gildandi sóttvarnareglur hafa verið framlengdar til 9. desember. Það þýðir m.a. áframhaldandi bann við æfingum og keppni hjá íslensku íþróttafólki. 1. desember 2020 12:05