Matur

Hin fullkomna kalkúnafylling á jólunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Berglind er heldur betur með fyllinguna á hreinu.
Berglind er heldur betur með fyllinguna á hreinu.

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin.

Allt frá klassískum uppstúf, sykurbrúnuðum kartöflum og gljáa á hrygginn yfir í nýjar hugmyndir, líkt og vegan lausnir, Ketó jól, 12 tíma graflax og fleira.

Áherslan er sett á stóru smáatriðin sem fullkomna matinn um hátíðirnar.

Í þriðja þættinum fer Berglind Hreiðarsdóttir, sem heldur úti síðunni Gotterí og gersemar,  ítarlega yfir það hvernig matreiða skal hina fullkomnu kalkúnafyllingu sem meðlæti en hún segir að meðlætið skipta jafn miklu máli og kalkúnninn sjálfur.

Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.

Klippa: Hin fullkomna kalkúnafylling á jólunum

Hér að neðan má sjá uppskriftina sjálfa:

Kalkúnafylling

  • 50 g sveskjur
  • 3 msk.smjör
  • 1 x saxaður laukur
  • 250 g gulrætur
  • 2 gul epli
  • 6 sneiðar af grófu brauði
  • 3 hvítlauksrif
  • 50 g pekanhnetur
  • 300 ml kjúklingasoð
  • 1 tsk. salvía
  • ½ tsk. oregano
  • Salt og pipar eftir smekk

  1. Leggið sveskjurnar í bleyti í kalt vatn á meðan þið undirbúið annað.
  2. Steikið saxaðan laukinn upp úr smjörinu við meðalháan hita á meðan þið rífið gulræturnar með grófu rifjárni og skerið eplin í litla teninga.
  3. Skerið skorpuna af brauðinu og því næst má skera það í litla brauðteninga. Rífið/pressið niður hvítlaukinn.
  4. Hvítlaukurinn má nú fara á pönnuna/pottinn með lauknum ásamt eplum og steikið þannig áfram stutta stund (gott að bæta við smá smjöri).
  5. Saxið nú sveskjurnar smátt niður ásamt pekanhnetunum.
  6. Bætið restinni af hráefnunum út í pottinn/pönnuna og hrærið vel saman, smakkið til með salti og pipar.
  7. Hægt er að setja þessa fyllingu inn í kalkúninn en þá þarf að kæla hana fyrst. Ég hins vegar vill aldrei setja fyllingu í kalkúninn sjálfan heldur ber hana svona fram sem meðlæti.

Tengdar fréttir

Eftirrétturinn fyrir ketófólkið um jólin

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin.

Lykilatriðin á bak við sykurbrúnaðar kartöflur

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin. Allt frá klassískum uppstúf, sykurbrúnuðum kartöflum og gljáa á hrygginn yfir í nýjar hugmyndir, líkt og vegan lausnir, Ketó jól, 12 tíma graflax og fleira.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.