Skoðun

Grund­vallar­breyting í leik­skólum landsins án nægrar í­grundunar

Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir skrifar

Kæru samborgarar, stytting vinnuvikunnar er þarft verkefni fyrir samfélagið okkar og ekki síst fjölskyldufólk. Fæstir gera sér þó grein fyrir hvaða áhrif stytting vinnuvikunnar mun hafa á leikskóla því að hún má ekki kosta krónu aukalega. Allir leikskólar landsins standa nú frammi fyrir því verkefni að skipuleggja leikskólastarf með færra starfsfólki því að nú á að innleiða 36 stunda vinnuviku án þess að auka nokkuð við mönnun. Kennsla og umönnun barna er ekki verkefni sem er hægt að vinna hraðar eða stinga ofan í skúffu og klára daginn eftir. Börnin okkar þarfnast góðs starfsfólks sem hefur tíma og þekkingu til að sinna þeim að alúð og fagmennsku. Stytting vinnuvikunnar leiðir til undirmönnunar alla daga á hverjum einasta leikskóla á Íslandi. Ég tel íslenska leikskóla vera framúrskarandi á margan hátt en þessi breyting mun færa gæði íslensks leikskólastarf mörg ár aftur. Ein af forsendum styttingar vinnuvikunnar er að ekki mega skerða þjónustu en það sér hver sem vill sjá að slík undirmönnun er skerðing á þjónustu við börnin. Opinberi skilningurinn virðist vera að svo lengi sem opnunartími leikskóla skerðist ekki sé það ekki þjónustuskerðing, gæði starfsins og öryggi barnanna hafa þar ekkert vægi.

Ég geri mér grein fyrir að leikskólar eru ekki þeir einu sem þurfa að ráða fram úr flóknum viðfangsefnum varðandi styttingu vinnuvikunnar en nemendur okkar eru viðkvæmir skjólstæðingar og að okkur ber að standa vörð um hagsmuni þeirra. Ég tel styttingu vinnuvikunnar vera þarft verkefni en ég tel að þessi útfærsla sem ekki má kosta krónu sé röng leið og verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Við erum að gera grundvallarbreytingu á fyrsta skólastiginu í miðjum covid storminum þar sem leikskólar starfa eftir ströngum sóttvarnarreglum og eru uppteknir við að komast í gegnum kófið. Það er sérlega erfitt að ræða þessar breytingar eins og þarf þegar allir starfsmenn eru aðskildir í sóttvarnarhólfum og bæði starfsmenn og stjórnendur eru langþreyttir eftir langan covid vetur.

Ég legg því til að starfsmenn leikskóla fari rólega í slíkar grundvallarbreytingar og byrji á lágmarksstyttingu. Það er skýrt í kjarasamningum að stytting vinnuvikunnar er samvinnuverkefni á hverjum vinnustað. Látum ekki ytri þrýsting, tímaskort og covidþreytu hafa áhrif á fagmennsku okkar og verum óhrædd við að vera talsmenn leikskólabarna. Ef þú starfar í leikskóla og ert sammála mér um að stíga varlega til jarðar mæli ég með að þú vekir athygli á málinu á þínum vinnustað og á samfélagsmiðlum. Þú getur bæst í hópinn „Förum hægt í styttingu vinnuviku leikskólastarfsmanna“ á Facebook.

Ef að þú er foreldri eða aðstandandi leikskólabarns hvet ég þig til að vekja athygli á þessu á samfélagsmiðlum og skrifa sveitarfélaginu þínu hvatningu til að bæta mönnun leikskóla í samræmi við styttinguna. Þú getur bæst í hópinn „Förum hægt í styttingu vinnuviku leikskólastarfsmanna“ á Facebook.

Höfundur er deildarstjóri í leikskóla og talsmaður leikskólaþróunar sem hefur hagsmuni barna að leiðarljósi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×