Skoðun

Með hendur í skauti

Oddný G. Harðardóttir skrifar

Því lengur sem fólk er án atvinnu því erfiðari er staða þeirra fjárhagslega og félagslega. Sumir missa heilsuna líka. Í lok nóvember höfðu 3.919 manns verið atvinnulaus lengur en 12 mánuði. Á sama tíma í fyrra höfðu 1.540 manns verið atvinnulaus í meira en 12 mánuði. Það eru 2.379 fleiri nú en í fyrra eða 154% enda stendur yfir djúp atvinnukreppa og enga vinnu að fá.

Það fólk sem búið hefur við atvinnuleysi í meira en 12 mánuði hefur ekki fengið þriggja mánaða lengingu á tekjutengda bótatímabilinu. Það er vegna þess að ríkisstjórnin ákvað að þá búbót fengju aðeins þeir sem höfðu misst vinnuna í mars á þessu ári. Stjórnarliðar felldu tillögu Samfylkingarinn um að allir atvinnulausir fengju þessa viðbót, og létu eins og þær um 10.000 manneskjur sem voru atvinnulausar í febrúar væru betur staddar en hitt fólkið sem missti vinnuna í mars. Raunin er sú að fólk er því verr sett sem það hefur lengur verið án vinnu.

Á næstu sex mánuðum mun hluti þeirra sem hafa verið atvinnulaus lengur en 12 mánuði klára tímabil atvinnuleysisbóta. Þetta fólk þarf þá að leita á náðir sveitarfélaga eftir fjárhagsaðstoð. Sú fjárhagsaðstoð er í öllum tilfellum mun lægri en atvinnuleysisbæturnar og í sumum sveitarfélögum helmingi lægri.

Forgangur efnafólks

Samfylkingin lagði til að tímabilið yrði lengt því engin von er um vinnu í atvinnukreppunni. Og ef stjórnvöld geri ekkert eigi fólkið enga möguleika aðra en að segja sig til sveitar og óska eftir matargjöfum frá hjálparstofnunum. Stjórnarflokkarnir felldu tillögur okkar um þetta í tvígang rétt fyrir jólin.

En stjórnarliðarnir samþykktu aftur á móti skattalækkun sem tekjuhæstu 10% landsmanna njóta helst. Það gerðu þau með því að breyta viðmiðum fyrir fjármagnstekjuskatt þannig að hann taki til vaxtatekna, arðs og söluhagnaðar og hækka frítekjumarkið um 100%.

Skattalækkunin fyrir þau tekjuhæstu kostar ríkissjóð meira en að lengja atvinnuleysistímabilið um 6 mánuði. Ef að líkum lætur verðum við öll bólusett fyrir kórónuveirunni eftir 6 mánuði og atvinnulífið vonandi farið að taka við sér. Að lengja tímabil atvinnuleysisbóta kostar ríkissjóð innan við milljarð króna en skiptir sköpum fyrir fólkið sem fengi aukinn rétt til atvinnuleysisbóta.

Við jafnaðarmenn mótmælum harðlega aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar sem horfir með hendur í skauti á skort fólks sem býr við sárafátækt eftir langvarandi atvinnuleysi í atvinnukreppu.

Við jafnaðarmenn mótmælum harðlega forgangsröðun ríkisstjórnarinnar sem lækkar skatta á efnafólk í dýpstu efnahagskreppu í 100 ár.

Við jafnaðarmenn köllum eftir annarri forgangsröðun og krefjumst aðgerða sem vinna gegn vaxandi ójöfnuði í heimsfaraldri.

Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×