Þægilegt hjá City í Búdapest Anton Ingi Leifsson skrifar 24. febrúar 2021 21:53 Manchester City er á rosalegu skriði. Manchester City/Getty Manchester City er í góðri stöðu eftir fyrri leikinn gegn Borussia Mönchengladbach í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Lokatölur 2-0. City hafði verið á rosalegu skriði fyrir leikinn í kvöld og hafði liðið unnið átján leiki fyrir viðureignina sem fór fram í Búdapest í kvöld, vegna ferðatakmarkanna. Gestirnir frá Englandi komust yfir á 29. mínútu. Eftir slæma sendingu úr vörn þýska liðsins gaf Joao Cancelo frábæra sendingu inn á teiginn sem Bernardo Silva skilaði í netið. Þannig stóðu leikar í hálfleik en Kevin de Bruyne var til að mynda ekki í leikmannahóp enska toppliðsins í kvöld. Annað og síðara mark leiksins kom á 65. mínútu. Aftur var það fyrirgjöf, Bernardo Silva kom boltanum fyrir markið og þar var Gabriel Jesus mættur og kom boltanum í netið. Yfirburðir City í kvöld voru ansi miklir og sigurinn verðskuldaður. Þeir eru því komnir með annan fótinn í átta liða úrslitin og rúmlega það. 📈 - Most Champions League matches won by manager102 - Alex Ferguson89 - Carlo Ancelotti86 - Arsène Wenger81 - Josep Guardiola (+1)81 - José Mourinho57 - Louis van Gaal#ManCity #UCL pic.twitter.com/nlLm4emeeN— Gracenote Live (@GracenoteLive) February 24, 2021 Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti