Skoðun

Sögu­legar kosningar í Þýska­landi

Ívar Már Arthúrsson skrifar

Eins og margir vita þá styttist i þingkosningar í Þýskalandi, en þær fara fram 26. september næstkomandi, daginn eftir alþingiskosningarnar hér á landi.

Það hefur verið afskaplega spennandi fyrir alla sem hafa haft tök á því að fylgjast með kosningabaráttunni undanfarin misseri. Kosningarnar í ár marka ákveðin tímamót i þýskri sögu, þar sem þetta eru fyrsta kosningarnar í nánast 20 ár, þar sem Angela Merkel, kanslari landsins, er ekki í framboði. Hún tók við því embætti árið 2005 og hefur þurft að glíma við margs konar áskoranir í valdatíð sinni. En það er ekki bara þess vegna sem þessar kosningar eru taldar sögulegar. Þetta eru einnig fyrstu kosningarnar í sögu landsins, þar sem Græningjaflokkurinn, sem leggur megináherslu á umhverfismál, gæti unnið og fengið kanslaraembættið. Annalena Baerbock heitir konan sem er annar formaður Græningjana og jafnframt kanslaraefni þeirra. Hún byrjaði sem eins konar vonarstjarna og upphaflega töldu menn líklegt að hún myndi vinna kosningarnar, en síðan hefur margt gerst. Til að mynda var hún harðlega gagrýnd fyrir að hafa reynt ad fegra ferilskrá sína. Mótframbjóðendur hennar um kanslaraembættið eru Olaf Scholz frá Jafnaðarmannaflokknum og Armin Laschet frá flokki Kristilegra demókrata. Olaf Scholz þótti upphaflega ekki sigurstranglegur en það hefur heldur betur breyst og eins og er þykir hann líklegastur til að vinna og taka við af Angelu Merkel. Armin Laschet gekk ágætlega til ad byrja með, en flokkur hans mælist nú með minna fylgi en Jafnaðarmenn samkvæmt flestum könnunum. Þó að Olaf Scholz sé líklegastur til að verða næsti kanslari landsins þá er enn allt opið og því stefnir í afar spennandi kosningar. Samkvæmt nýjustu könnunum væri meirihluti í þýska þinginu (Bundestag), fyrir því að mynda vinstri stjórn. Í henni sætu Jafnaðarmenn, Græningjar og Róttæki vinstri flokkurinn, Die Linke. Kristilegir demókratar hafa ítrekað varað við þeim möguleika og telja að það gæti haft afar neikvæð áhrif á þýskt samfélag. Á móti hafa þeir verið sakaðir af þessum flokkum um að reka hræðsluáróður til að auka líkurnar á að þeir vinni kosningarnar. Einnig gætu samkvæmt tölunum Jafnaðarmenn og Græningjar myndað stjórn með flokki Frjálsra demókrata. Svo gætu flokkur Armin Laschets og Græningjar líka myndað stjórn með Frjálsum demókrötum. Það sem er þó ljóst er að enginn þessara flokka er tibúinn til að mynda stjórn með Róttæka hægri flokknum, Alternative für Deutschland. Sá flokkur fékk 12 prósent í síðustu kosningum og er því spáð að fylgi flokksins verði mjög svipað, þegar búið verður að telja upp úr kjörkössunum. Stærstu málin í þessari kosningabaráttu hafa verið umhverfismál, glíman við heimsfaraldurinn og staðan sem upp er komin í Afganistan. Þannig að þegar á allt er litið má sem sagt búast við afar spennandi kosningum í Þýskalandi í lok mánaðarins.

Höfundur er nemi. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×