Englandsmeistararnir ekki í vandræðum með Belgana 19. október 2021 18:42 Leikmenn Manchester City fagna fjórða marki sínu í dag. ANP Sport via Getty Images Ensku meistararnir í Manchester City lentu ekki í miklum vandræðum þegar liðið heimsótti Club Brugge í Meistaradeild Evrópu í dag. City er nú í það minnsta tímabundið á toppi A-riðils eftir 4-0 sigur. Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós eftir um hálftíma leik þegar að Joao Cancelo kom gestunum í City yfir eftir stoðsendingu frá Íslandsvininum Phil Foden. Gestirnir fengu svo vítaspyrnu stuttu fyrir hálfleik þegar Stanley N'Soki braut á Riyad Mahrez innan vítateigs. Mahrez fór sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi framhjá Simon Mignolet í marki Club Brugge. Kyle Walker kom gestunum í 3-0 á 53. mínútu eftir stoðsendingu frá Kevin De Bruyne, áður en Cole Palmer skoraði fjórða mark City rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok. Hans Vanaken lagaði stöðuna lítillega á 81. mínútu þegar hann minnkaði muninn í 4-1, en Riyad Mahrez bætti við sínu öðru marki, og fimmta marki City þremur mínútum síðar. Manchester City hefur nú sex stig á toppi A-riðils, tveimur stigum meira en Club Brugge sem situr í þriðja sæti. FULL-TIME | What a night! ✨⚫️ 1-5 ⚪️ #ManCity pic.twitter.com/YsC65tPlHn— Manchester City (@ManCity) October 19, 2021 Þá tók Besiktas á móti Sporting í C-riðli þar sem gestirnir höfðu betur, 4-1. Sebastian Coates skoraði tvö mörk fyrir gestina og Pablo Sarabia og Paulinho eitt mark hvor. Cyle Larin skoraði mark heimamanna. Þetta voru fyrstu stig Sporting í riðlinum, en liðið situr í þriðja sæti. Besiktas er enn án stiga. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti