Skoðun

Saman sigrum við

Sólveig Anna Jónsdóttir og Michael Bragi Whalley skrifa

Félagsfólk í stéttarfélaginu okkar, Eflingu, hefur á einungis rúmum þremur árum vakið verkalýðsbaráttu láglaunafólks á Íslandi af löngum svefni. Verkföll á Íslandi höfðu áratugina á undan verið nær alfarið bundin við fámenna hópa millitekjufólks, svo sem heilbrigðisstéttir hjá ríkinu, flugstéttir og sjómenn.

Í verkfallsaðgerðum Eflingar á almenna og opinbera vinnumarkaðnum 2019-2020 gerðist það hins vegar í fyrsta sinn í lengri tíma að við, ófaglært verkafólk, samþykktum og tókum þátt í fjölmennum verkfallsaðgerðum.

Verkfallsaðgerðir okkar voru erfiðar, en þær voru vel skipulagðar og kenndu okkur mikið. Þannig afsönnuðum við goðsögnina um að tími herskárrar verkalýðsbaráttu væri liðinn. Einnig köstuðum við goðsögnini um að verkafólk vildi ekki fara í verkföll út í hafsauga, eins og niðurstöður verkfallskosninga meðal félagsfólks staðfestu aftur og aftur.

Það mikilvægasta af öllu var þó að við sýndum að barátta skilar árangri. Íslenska valdastéttin, oftar en ekki með stuðningi verkalýðsforystunnar, hefur sett mikið púður í að telja verkafólki trú um að barátta borgi sig ekki. Okkur hefur verið kennt að láta sérfræðinga sem nota orð eins og „svigrúm“ og „stöðugleiki“ sjá um að leysa málin fyrir okkur. Við Eflingarfélagar sönnuðum hins vegar að leiðin til árangurs er þveröfug: Hún er að taka málin í eigin hendur og virkja það vald sem við sjálf höfum sem vinnandi fólk.

Þessi árangur náðist ekki aðeins vegna nýrrar forystu sem tók við í félaginu árið 2018. Árangurinn náðist líka vegna þess að stórir hópar félagsfólks voru tilbúnir að taka þátt. Við sjálf greiddum atkvæði í verkfallskosningum og vorum nær öll á einu máli. Við sjálf fylltum sali á fjöldafundum þar sem við sýndum mátt okkar og megin. Við sjálf vorum tilbúin að vera andlit okkar eigin baráttu í kynningarmyndböndum og á plakötum.

Stærsti lærdómurinn af baráttu Eflingarfélaga síðan 2018 er þessi: Árangur í kjarabaráttu næst þegar félagsfólk sjálft er fjölmennt, stendur saman og þorir að stíga fram. Við viljum taka sæti í stjórn Eflingar til að standa vörð um þessi beittu og máttugu vopn. Reynslan hefur sýnt að þessi vopn skila okkur árangri og þau má aldrei taka af okkur. Þess vegna bjóðum okkur fram til stjórnar Eflingar með félögum okkar á B-listanum í komandi stjórnarkosningum.

Höfundar eru frambjóðendur til stjórnar Eflingar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×