Skoðun

Það gilda lög í stríði

Brynhildur Bolladóttir skrifar

Fæst okkar muna eftir vopnuðum átökum jafn nálægt okkur og nú og sjaldan eða aldrei hefur verið jafn auðvelt að setja sig í spor flóttafólks og þegar þúsundir manna flýja heimili sín í Úkraínu.

Fréttir eru sagðar af óbreyttum borgurum sem falla, að sprengjur hafi fallið á skóla eða leikskóla og að innviðir á borð við rafmagnslínur, vatnsleiðslur, vegi og internet séu eyðilagðir. Allt undantalið er verndað af alþjóðlegum mannúðarlögum, Genfarsamningunum og þremur viðbótarbókunum við þá, en Alþjóðaráð Rauða krossins er verndari þeirra.

Í samningunum eru ákvæði sem veita Rauða krossinum víðtækt hlutverk við að vernda og aðstoða þolendur stríðsátaka. Rauði krossinn fræðir stríðandi fylkingar um Genfarsamningana og fylgist með því að þeir séu virtir.

Grundvallaratriði Genfarsamninganna eru:

  • Allir sem hafa lagt niður vopn eiga rétt á vernd.
  • Fangar njóta verndar.
  • Þeir sem sinna hjálpastarfi njóta verndar.
  • Ekki má ráðast á eignir óbreyttra borgara.
  • Ekki má valda þarflausri eyðileggingu eða þjáningum.

Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans vinnur ötullega að því að minna yfirvöld, hermenn, uppreisnarmenn og aðra stríðandi aðila á Genfarsamningana, þ.e. þau lög sem gilda í stríði og þá sérstaklega á mikilvægi þess að vernda almenna borgara.

Með undirritun Genfarsamninganna hafa ríki heims skuldbundið sig til þess að takmarka stríðsrekstur á ýmsan hátt og hlífa þeim sem ekki taka beinan þátt í ófriði. Genfarsamningarnir veita vernd í vopnuðum átökum og eru hornsteinn alþjóðlegs mannúðarréttar. Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna auk Vatíkansins, Palestínu og Cookseyja, hafa fullgilt samninganna og fjölmörg ríki hafa fullgilt viðauka við þá.

Rauða kross hreyfingin hefur einnig beitt sér fyrir algjöru banni og útrýmingu kjarnorkuvopna allt frá árinu 1945. Hér má lesa grein Sveins Kristinssonar, formanns Rauða krossins á Íslandi, frá árinu 2019 um að íslensk stjórnvöld skrifi undir og fullgildi samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum en íslensk stjórnvöld hafa enn ekki skrifað undir þennan samning.

Ljóst er að mannúðarlög eru oft brotin í stríðsátökum – en þeim er líka mjög oft fylgt. Það þykir ekki fréttnæmt ef menningarverðmætum, skólum eða óbreyttum borgurum er þyrmt. Genfarsamningarnir ásamt hlutleysi sínu gera Rauða krossinum kleift að starfa á átakasvæðum, í Úkraínu sem og annars staðar.

Höfundur er upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×