Matur

Sykur­púða­kók með vatns­melónu- og jarðar­berja­bragði

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Coca-Cola hefur kynnt til leiks nýja útgáfu af hinum sígilda drykk með vatnsmelónu- og jarðarberjabragði.
Coca-Cola hefur kynnt til leiks nýja útgáfu af hinum sígilda drykk með vatnsmelónu- og jarðarberjabragði. Coca-Cola

Coca-Cola kynnir til leiks nýja útgáfu af hinum sígilda drykk, nú með vatns­melónu- og jarðarberjabragði. Þessi nýja bragðtegund er unnin í samvinnu við raftónlistarmanninn Marshmello og kemur út í takmörkuðu upplagi.

Coca-Cola heldur áfram útgáfum sínum á nýjum útgáfum drykkjarins í takmörkuðu upplagi. Í febrúar kom út „Coca-Cola Stjörnuljós“ og í apríl gaf fyrirtækið út „Byte“ með „pixel-bragði.“ Núna kemur út ný útgáfa frá fyrirtækinu í samvinnu með raftónlistarmanninum Marshmello. 

Að sögn fyrirtækisins er markmiðið með þessari nýju útgáfu að ná til yngri neytenda.

Hið nýja sykurpúðakók er þegar komið út á Bretlandi og kemur út í Bandaríkjunum 11. júlí næstkomandi. Drykkurinn mun síðan koma út í völdum löndum sem fyrirtækið hefur ekki gefið ekki upp.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.