Íslensku stúlkurnar úr leik eftir mark á lokasekúndunum Valur Páll Eiríksson skrifar 7. ágúst 2022 17:50 Íslenska liðið mætir því hollenska í dag. Mynd/IHF Íslenska U-18 ára landsliðið í handbolta tapaði í dag með minnsta mun, 27-26, fyrir Hollandi á HM kvenna í aldursflokknum. Mark á lokasekúndum leiksins réði úrslitum.
Leikur liðanna fór hægt af stað en eftir tæplega átta mínútna leik var staðan 1-1. Mörkum hrannaðist inn í kjölfarið er hraðinn jókst en liðin skiptust á forystunni framan af hálfleik. Ísland var 11-10 yfir þegar um sex mínútur voru eftir af hálfleiknum en Holland skoraði fimm af síðustu sex mörkum hálfleiksins og leiddu með þriggja marka mun í hléi, 15-12. Það tók Ísland rúmar fjórar mínútur að skora sitt fyrsta mark í síðari hálfleik en Holland var áfram með þriggja marka mun framan af. Íslenska liðið vann þó hægt og bítandi á og tókst að jafna 20-20 þegar síðari hálfleikur var rúmlega hálfnaður, og komst svo yfir 21-20 í kjölfarið. Eftir það var leikurinn í járnum og spennan mikil er liðin skiptust á forystunni. Staðan var jöfn 26-26 þegar Ísland tók leikhlé þegar mínúta var eftir. Íslenska liðið missti boltann í sókninni, þær hollensku fóru á móti upp í sókn og skoruðu sigurmarkið þegar um tíu sekúndur voru eftir. Íslandi tókst ekki að koma skoti á mark á þeim skamma tíma sem eftir var og urðu 27-26 úrslit leiksins, Hollandi í vil. Ísland er því úr leik á mótinu en Holland fer í undanúrslit.
Handbolti Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Í beinni: Ísland - Úkraína | Mikilvægur leikur í Innsbruck Handbolti Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sport Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Enski boltinn „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Körfubolti Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Fótbolti Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Fótbolti Fleiri fréttir Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Í beinni: Ísland - Úkraína | Mikilvægur leikur í Innsbruck Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Sjá meira