Rafíþróttir

Leikmannaspá Ljósleiðaradeildarinnar: Lofa góðu en ná ekki að slá meistarana af stalli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þórsurum er spáð öðru sæti Ljósleiðaradeildarinnar.
Þórsurum er spáð öðru sæti Ljósleiðaradeildarinnar.

Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO spá Þór öðru sæti deildarinnar á komadi tímabili.

Ljósleiðaradeildin í CS:GO hefst með pompi og prakt í kvöld og af því tilefni mun Vísir birta spá sem leikmenn deildarinnar settu saman fyrir tímabilið sem framundar er.

Þórsurum er spáð öðru sæti deildarinnar, en liðið hafnaði einmitt í öðru sæti á seinasta tímabili. Þórsarar standa því í stað ef spá leikmanna gengur eftir.

Lið Þórs er með svipaðan mannskap og á seinasta tímabili og þá voru Þórsarar nánast eina liðið sem veittu meisturum Dusty smá samkeppni. Ekki er talið að Þórsurum takist að slá Dusty við, en ef eitthvað lið á að standa í ríkjandi meisturum þá er það Þór.

Lið Þórs skipa þeir miNideGreez! (Karl Hólmar Clausen Holgerson), peterrr (Pétur Örn Helgason), Dabbehhh (Davíð Matthíasson), Rean (Andri Þór Bjarnason), j0n (Jón Kristján Jónsson) og Dell1 (Sverrir Hjaltested).

Fyrsti leikur Þórs er gegn LAVA í kvöld klukkan 20:30. LAVA er liðið sem áður hét Vallea og hafnaði í þriðja sæti deildarinnar á seinasta tímabili. Þór og Vallea börðust lengst af um annað sætið í vor og því verður spennandi að sjá hvernig fer í kvöld.

 Ljósleiðaradeildin hefst í kvöld, en útsending hefst klukkan 19:15 og verða tveir leikir spilarðir, kl 19:30 og 20:30. Á fimmtudögum verða svo þrír leikir spilaðir til að loka umferðinni og hefst útsending þá líka kl 19:15, en leiktímar eru 19:30, 20:30 og 21:30. Beinar útsendingar alltaf á Stöð 2 eSport og Twitch-rás RÍSÍ.


Tengdar fréttir






×