Nkunku hefur nú þegar staðist læknisskoðun hjá Chelsea og kemur næsta sumar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. október 2022 12:01 Christopher Nkunku mun að öllum líkindum ganga í raðir Chelsea frá RB Leipzig næsta sumar. Vísir/Getty Franski framherjinn Cristopher Nkunku hefur nú þegar staðist læknisskoðun hjá Chelsea og mun ganga í raðir félagsins frá RB Leipzig eftir tímabilið.
Þetta fullyrðir þýski miðillinn Bild. Nkunku mun ganga til liðs við Chelsea fyrir 52 milljónir punda, en það samsvarar tæpum átta og hálfum milljarði íslenskra króna. Nkunku var eftirsóttur biti í sumar þar sem ensku úrvalsdeildarfélögin Chelsea og Manchester United voru sögð áhugasöm um leikmanninn. Hnn var með heitari framherjum Evrópu á síðustu leiktíð. Alls spilaði hann 50 leiki fyrir Leipzig í öllum keppnum, skoraði 35 mörk og lagði upp 17 til viðbótar. Nkunku ákvað þó að halda kyrru fyrir hjá Leipzig og skrifaði undir nýjan samning við félagið til ársins 2026. Þessi 24 ára gamli framherji hefur skorað fjögur mörk fyrir RB Leipzig í fyrstu sjö leikjum tímabilsins í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu, en alls hefur hann skorað 53 mörk og lagt upp önnur 48 fyrir liðsfélaga sína í 147 leikjum í öllum keppnum fyrir félagið. Þá á hann einnig að baki átta leiki fyrir franska landsliðið, en á enn eftir að skora fyrir þjóð sína.
Enski boltinn Þýski boltinn Fótbolti Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Handbolti Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims Fótbolti „Þetta er mjög ljúft“ Handbolti Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Fótbolti Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Handbolti Fleiri fréttir Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira