Rafíþróttir

Tilþrifin: Blóðug barátta í framlengdum leik í Ancient

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Það er blóðug barátta í Elko tilþrifum gærkvöldsins.
Það er blóðug barátta í Elko tilþrifum gærkvöldsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það blóðug barátta á Ancient kortinu í framlengdum leik SAGA og Viðstöðu sem á sviðsljósið.

SAGA og Viðstöðu mættust í virkilega jafnri og spennandi viðureign í gærkvöldi þar sem Viðstöðu hafði að lokum betur, 19-17, eftir framlengdan leik. Var þetta fyrsti sigur liðsins á tímabilinu og liðið spyrnti sér því af botni Ljósleiðaradeildarinnar og upp að hlið Breiðabliks og Fylkis í 7.-9. sæti.

Viðureignin náði hápunkti í framlengingunni þegar staðan var 16-15, Viðstöðu í vil. Liðin mættust þá á svæði B og við tók blóðug barátta.

skooN úr SAGA byrjaði á því að taka út xeny, áður en Blazter tók út þrjá liðsmenn SAGA á örskotstundu. Blazter var síðan skotinn niður af xZeRq, en það var klassy úr Viðstöðu sem batt endahnútinn á þennan blóðuga hitting liðanna þegar hann tók út ADHD.

Klippa: Elko tilþrif: Blóðug barátta í Ancient





×