Skoðun

Um fjöl­miðla og einka­mál

Soffía Þorsteinsdóttir skrifar

Fyrir viku (9. október) sendi ég, ásamt föður mínum og eiginkonu hans, yfirlýsingu á fjölmiðla í kjölfar þess að systir mín hafði afhent þeim dagbók látinnar móður minnar sem hún hafði skrifað fyrir 52 árum. Þetta gerði systir okkar án samráðs við okkur og í mikilli óþökk.

Þegar ég vann á dagblaði á Englandi fyrirmargt löngu síðan, fór allt í uppnám í fréttaherberginu þegar “copy/paste” virkaði ekki einn daginn og engar fréttir hægt sð setja í blaðið! Þetta þótti mjög fyndið og eftir það var fréttaherbergið kallað “copy/paste”.

Eitthvað virðist hafa klikkað hjá copy/paste miðlunum á Íslandi í flestum ef ekki öllum fréttum sem byggðar voru á dagbók móður minnar. Fyrst er þó að nefna að Stundin ákvað að birta hálfrar aldar einkadagbækur móður minnar án þess að biðja um viðeigandi leyfi eða álit annara aðstandenda. Einkadagbækur eiga ekki erindi til neins nema þess sem þær skrifar. Ég velti því fyrir hvað Persónuvernd segi við þessu?

Og ekki gátu þessar miðlar náð niður á blað einföldustu staðreyndum: Í einni greininni er ég gift stjúpu minni, þar næst heiti ég Sólveig, svo er mamma komin með nýtt eftirnafn. Ein greinin fer svo rangt með yfirlýsingu okkar pabba og gengur svo langt að saka okkur um lygi í yfirlýsingunni, sem er auðvitað ekki, heldur eru þeir að setja útá þeirra eigin rangmæli. Einnig var skrifað einhverstaðar að yfirlýsing okkar pabba hafi verið skrifuð í kaffihittingi með Jóni Baldvin Hannibalssyni, sem er ekki rétt, því augljóslega var ég ekki viðstödd þann hitting, þar sem ég var ekki stödd á landinu.

Engin rannsókn hefur verið lögð í málið, fyrir utan það að Stundin gróf upp einhvern mætingalista frá Hagaskóla sem sannar ekkert annað en að mamma hafi jú gengið í Hagaskóla og mætt í þær kennslustundir sem hún skráði í dagbækur sínar. Var einhver efi á því? Hvar er nú rannsóknarblaðamennskan?

Enginn þessara fjölmiðla hefur haft samband við mig um þetta eða leitast eftir álitum, skoðunum né leyfum frá neinum nema systur minni sem afhenti miðlunum dagbókina án nokkurs samráðs við okkur hin. Heimildir eru einungis hafðar frá einni manneskju. Hefur einhver haft fyrir því að rannsaka hennar bakgrunn? Hún lætur í ljós í þeim viðtölum sem henni hafa boðist að hún hafi verið mikil mömmustelpa, hetjan sem talar máli látinnar móður sinnar og birtir eldgamlar myndir af sér og mömmu sinni. Mætti kannski rifja upp minningargreinina sem hún skrifaði ástúðlega um mömmu sína sem hún elskaði svo heitt? Æji úps! Það er engin minningargrein…

Ég velti því fyrir mér hvernig er komið fyrir fjölmiðlum á Íslandi. Hvernig á almenningur að treysta því sem þeir birta í sínum blöðum (um hvaðeina) þegar það er ljóst bara í þessu einstaka máli að þeir geta ekki einu sinni náð nöfnum rétt, hvað þá virt þá gullnu blaðamannareglu að það eru tvær hliðar á öllum málum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×