Skoðun

Hvernig byggjum við upp grænt hagkerfi?

Kristín Linda Árnadóttir og Benedikt Gíslason skrifa

Ísland hefur sett sér það markmið að verða kolefnishlutlaust árið 2040. Margt þarf að ganga upp til að það markmið náist en sjálfbærnitengd fjármögnun veitir atvinnulífinu hvata til þess að færa sig í átt að kolefnishlutleysi. Stýring fjármagns í rétt verkefni er forsenda þess að hraða tækniþróun og styðja við að markmiðið náist.

Íslendingar eru í þeirri góðu stöðu að vera leiðandi í endurnýjanlegri orkuvinnslu og hér liggja fjölmörg tækifæri til tækniþróunar og nýsköpunar sem styðja við kolefnishlutleysi. Landsvirkjun var fyrsti útgefandi grænna skuldabréfa hér á landi árið 2018 og hefur öll fjármögnun fyrirtækisins síðan þá verið græn og/eða sjálfbærnitengd. Þá hefur Arion banki gefið út græna fjármálaumgjörð þar sem græn verkefni eru skilgreind og er hún lykillinn að fjármögnun bankans á grænum lánveitingum til einstaklinga og fyrirtækja. Græn fjármögnun er góð leið til að styðja verkefni sem stuðla að hagkvæmri orkunotkun, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eða eru til þess fallin að koma á nauðsynlegum breytingum sem leiða til þess að markmið um kolefnishlutlaust hagkerfi nái fram að ganga.

Samræmt flokkunarkerfi

Með tilkomu nýrrar flokkunarreglugerðar Evrópusambandins er verið að innleiða samræmt flokkunarkerfi fyrir sjálfbæra fjármögnun. Tilgangur hennar er að auðvelda greiningu á sjálfbærri atvinnustarfsemi, draga úr grænþvotti og almennt auðvelda fjármálastofnunum að greina á milli sjálfbærrar og ósjálfbærrar atvinnustarfsemi. Flokkunarreglugerðin byggir á sex umhverfismarkmiðum. Þau eru mildun loftslagsbreytinga, aðlögun að loftslagsbreytingum, sjálfbær nýting og verndun vatns og sjávarauðlinda, umbreyting í hringrásarhagkerfi, mengunarvarnir og eftirlit með mengun og verndun og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa.

Til að teljast græn þarf starfsemi að styðja að verulegu leyti við a.m.k. eitt af þessum sex umhverfismarkmiðum og ekki valda umtalsverðum skaða þegar kemur að hinum. Að auki eru lágmarkskröfur um stjórnunarhætti og mannréttindi. Með nýrri reglugerð er umgjörðin fyrir sjálfbær verkefni að skýrast. Þar sem endurnýjanleg orkuvinnsla er forsenda þess að kolefnishlutleysi náist þá er ljóst að afleidd verkefni, nýsköpun og tækniþróun sem falla undir viðmið flokkunarreglugerðarinnar geta fengið græna fjármögnun.

Það er mikilvægt að við stuðlum öll að grænu hagkerfi, fylgjum alþjóðlegum viðmiðum og nýtum okkur þau til að ná árangri. Fjárhagslegir hvatar felast í að þróa, styðja við og innleiða nýjar lausnir og ferla sem stuðla að kolefnishlutleysi. Við þurfum að vanda vel til verka með samstilltu átaki og samstarfi atvinnulífsins og stjórnvalda. Tækifærin í breyttum heimi og kolefnishlutleysi eru mörg en það er okkar að grípa þau.

Græn fjármögnun og tækifærin í kolefnishlutleysi eru meðal þess sem verður til umræðu á ársfundi Grænvangs sem haldinn verður í Grósku í dag kl. 13. Öll eru velkomin á fundinn. Skráning fer fram hér.

Benedikt er bankastjóri Arion banka og Kristín Linda er aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×