Skoðun

Fram­sókn og Sam­fylking tapa fluginu

Matthías Arngrímsson skrifar

Fremsti framagosi Framsóknarflokksins gerðist staurfótur sísta Samfylkingarstjórans í Reykjavík. Viðreisn síðasta kjörtímabils var svo sem ekki tignarlegri, en þessi er grátleg. Við bundum nefnilega vonir við Einar Þorsteinsson, og að hann myndi verja þjóðarflugvöllinn með kjafti og klóm. En sú von brást með samstarfi við helsta óvin vallarins og það hefur skilað vellinum í enn verri stöðu en áður, enda er Dagur yfirlýstur andstæðingur hans og hefur misst alla virðingu í málinu. Deiliskipulag Nýja Skerjafjarðar skerðir nýtingu vallarins, flugrekstraröryggi og flugöryggi og brýtur mögulega í bága við lög. Það er mjög líklegt að ef Innviðaráðherra gerir ekkert í málinu muni Framsóknarflokkurinn þurrkast út í næstu borgarstjórnarkosningum, enda var þessi borgarstjórnarmeirihluti ekki það sem fylgismenn flokksins voru að kjósa. Hún er ekki vænleg til vinnings, sú framtíð sem blasir við landsmönnum þegar þeir þurfa að komast til höfuðborgarsvæðisins hratt og örugglega. Það er verið að vinna að því að hindra sjúkraflug og koma í veg fyrir að landsmenn komist með góðu móti til höfuðborgarsvæðisins. Skútað upp á bak í samgöngumálum.

Sjúkraflugið er okkar allra

Enn og aftur er rétt að leiðrétta þann misskilning að þyrlur sinni öllu sjúkraflugi. Það er ekki þannig og þess vegna þurfum við óheftan og öruggan aðgang að flugbrautum Reykjavíkurflugvallar allt árið um kring. Í fyrra flugu sjúkraflugvélar 888 sjúkraflug innanlands og 145 flug til útlanda. Í sjúkraflugum milli landa er oft um lífsnauðsynlega líffæraflutninga að ræða. Af þessum flugum voru 426 skilgreind sem neyðarflug (F1/F2) þar sem mínútur skiptu máli eða 48% tilfella. Þyrlur flugu 103 sjúkraflug en reyndar vantar þar betri greiningu á hvað telst sjúkraflug með sjúkling annars vegar, og svo hins vegar björgunarflug af fjöllum eða sjó t.d. sem enda á sjúkrahúsi með slasaða.

Önnur skaðleg áhrif

Einnig kemur þetta deiliskipulag í veg fyrir að flugvélar í millilandaflugi geti lent í Reykjavík ef aðrir flugvellir lokast. Það mun kosta stóraukinn útblástur vegna meiri eldsneytisburðar og fargjaldahækkanir verða óumflýjanlegar. Svo má ekki gleyma að innanlandsflugið mun eiga erfiðara um vik og fleiri flug verða felld niður, eða áfangastöðum fækkað, svo skaðleg áhrif á tryggar almenningssamgöngur verða varanlegar. Þegar orkuskiptin eru handan við hornið má reikna með að ódýrara verði að fljúga til fleiri staða en nú er gert og það má ekki heldur skaða þá byltingu í samgöngum þjóðarinnar ef völlurinn fær að starfa óáreittur.

Ábyrgðin liggur hjá Framsókn og Samfylkingu

Það verður að bregðast hratt og örugglega við og nauðsynlegt að stöðva þennan borgarstjórnarmeirihluta í skemmdarverkum sínum á samgönguinnviðum þjóðarinnar allrar. Samfylkingin er löngu orðin getulaus í málinu svo það þýðir ekki að ræða við þau, enda meðvirknin með borgarstjóra löngu farin út fyrir öll velsæmismörk. Framsóknarmenn á landsvísu og aðrir verða að láta í sér heyra og þrýsta á að Innviðaráðherra og formaður borgarráðs sjái að sér og leiðrétti sín mistök. Þannig verða þeir menn að meiri og Framsókn heldur þá mögulega sínum sætum í borgarstjórn í næstu kosningum. Ég skora á sveitastjórnir á Íslandi að mótmæla harðlega fyrirsjáanlegri skerðingu á samgöngum við höfuðborgarsvæðið. Innviðaráðherra hefur ýmsar lagalegar leiðir til að hindra þetta skaðlega deiliskipulag og ætti að nýta sér þær til að stöðva það Dagsverk, áður en þjóðarflugvöllurinn verður rústir Einars. Það yrði ömurleg arfleifð Framsóknar og Samfylkingar.

Höfundur er flugstjóri og flugkennari.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×