Skoðun

Nokkur orð um sátt og sektir

Hörður Felix Harðarson skrifar

Eimskip er markaðsráðandi aðili á íslenskum flutningamarkaði. Félagið hefur mikla yfirburði í flutningum til og frá Evrópu og í einokunarstöðu í beinum flutningum til og frá N-Ameríku.

Eimskip hefur misnotað þessa stöðu sína með fjölmörgum og endurteknum aðgerðum í gegnum tíðina gegn helsta keppinauti sínum, Samskipum. Fyrir það var félagið sektað af samkeppnisyfirvöldum. Þá var félagið dæmt til að greiða Samskipum bætur vegna umræddra brota.

Við meðferð þess máls sem hefur verið til umfjöllunar síðustu daga tók Eimskip til varna. Í vörnum félagsins, sem voru mjög umfangsmiklar, var því m.a. lýst að samráðskenningar Samkeppniseftirlitsins væru „skáldaður tilbúningur“ og þær ættu „enga stoð í raunveruleikanum“. Var vinnubrögðum stofnunarinnar og fullkomnum skorti á hlutlægni réttilega andmælt mjög harðlega.

Vorið 2021 ákváðu stjórnendur félagsins eftir sem áður að ljúka málinu með sátt við Samkeppniseftirlitið. Það var ekki forsenda sáttarinnar að Eimskip færði fram ný gögn eða upplýsingar af nokkrum toga. Enginn einstaklingur hefur stigið fram og lýst sig samþykkan samsæriskenningum stofnunarinnar.

Kenning Samkeppniseftirlitsins er sú að forsvarsmenn félaganna hafi hist á fundi 6. júní 2008 og skipulagt víðtækt samráð. Þá hafi aðrir fundir milli félaganna, sem vissulega hafi að nafni til lotið að lögmætum viðskiptum, einnig verið nýttir til ólögmætra samskipta. Það sama hafi að líkindum einnig gerst í afmælisveislum, á þorrablótum, árgangamótum og íþróttaviðburðum. Þetta fullyrðir stofnunin einfaldlega ranglega að hafi gerst. Fjölmargir starfsmenn Eimskips, núverandi og fyrrverandi, sátu þessa fundi eða voru viðstaddir þessa viðburði. Mætti því ætla að mikilvægt væri að a.m.k. einhver þeirra hefði staðfest við sáttargerðina að samsæriskenningar stofnunarinnar væru réttar.

Þess var hins vegar sýnilega ekki krafist. Félagið Eimskip lýsti því einfaldlega með almennum hætti að það féllist á málatilbúnað Samkeppniseftirlitsins og væri reiðubúið að greiða sekt að fjárhæð 1,5 milljarðar króna. Með því náðu stjórnendur félagsins m.a. þessu fram:

  • Félagið, sem skráð er á hlutabréfamarkaði, eyddi óvissu í rekstri sem óhjákvæmilega hlýst af rannsókn af þessum toga
  • Virði félagsins á markaði jókst umtalsvert í kjölfarið
  • Sök var ranglega varpað á keppinaut sem hefur reynst Eimskipi óþægur ljár í þúfu í gegnum tíðina
  • Tryggt var að þessi keppinautur fengi a.m.k. jafn háa sekt frá Samkeppniseftirlitinu
  • Tryggt var með sáttinni að Eimskipi væri eftirleiðis óskylt, þrátt fyrir markaðsráðandi stöðu félagsins, að eiga í viðskiptum af nokkru tagi við Samskip

Vegna fjárhagslegs styrks félagsins sá vart högg á vatni í hagnaðartölum Eimskips fyrri hluta árs 2021 þrátt fyrir sektargreiðsluna.

Samkeppniseftirlitið brást ekki væntingum Eimskips og hefur nú ákveðið að réttmætt sé að minni aðilinn á markaðnum fái sekt sem er nær þreföld sú fjárhæð sem markaðsráðandi fyrirtækið bauðst til að greiða. Með því eru send þau skilaboð að fyrirtækjum landsins sé hollast að standa ekki í hárinu á stofnuninni eða leita réttar síns. Hvatinn til að játa brot, burtséð frá réttmæti ásakana, verður sífellt meiri.

Höfundur er lögmaður Samskipa.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×