Skoðun

Nóg komið

Gunnlaugur Stefánsson skrifar

Laxeldi í opnum sjókvíum í íslenskum fjörðum ætlar að reynast lífríkinu dýrkeypt eins og lengi hafði verið varað við. Fiskur sleppur umvörpum, erfðablöndun við villta laxastofna og lúsafár sem herjar á fiskinn með tilheyrandi eiturefnanotkun. Og hrikaleg mengun af eldinu skaðar lífríkið í nágrenninu og spillir m.a. viðkvæmum búsvæðum nytjafiska.

Engar mótvægisaðgerðir eru til sem koma í veg fyrir tjónið

Hvað sem menn skrifa í reglur og stefnumótun, þá verða áfram til göt á kvíum og fiskur sleppur, lúsin heldur áfram að herja og mengunin flæðir undan kvíunum.

Viljum við fórna villtum laxastofnum og lífríkinu og allri ferðaþjónustunni sem þessu tengist fyrir skammtímagróða norskra eldisrisa?

Hvað ætla stjórnmálamenn að segja við landsbyggðarfólk á jörðum sínum sem varð að bregða búi skuldum vafið af því að hlunnindin af laxveiðinni hurfu í skiptum fyrir sjókvíaeldið?

Hvað ætla stjórnmálamenn að segja við barnabörnin sín, þegar þau spyrja: „Varst þú ekki á Alþingi þegar sjókvíaeldið útrýmdi villta laxinum í ánum“?

Ísland er eitt örfárra landa sem leyfir notkun á framandi stofni í opnu sjókvíaeldi. Það myndi t.d. aldrei vera leyft í Noregi. En á Íslandi viðgengst að nota norskan og frjóan eldislax. Árið 1988 var gert samkomulag milli hagaðila í stangaveiði og laxeldi að aldrei verði notaðir framandi stofnar í eldinu á Íslandi. Það var svikið og stjórnvöld láta sér vel líka.

Það yrði stórt skref til náttúruverndar að banna norskan lax í opna sjókvíaeldinu. Í drögum að nýrri stefnumótun matvælaráðuneytisins í laxeldi er gengið útfrá óbreyttri skipan.

Hvergi er fjallað um ábyrgð á þeim skaða og fjártjóni sem sjókvíaeldið veldur og þaðan af síður er eldisfyrirtækjunum skylt að kaupa sér umhverfistryggingar.

Þegar ný fiskeldislög voru samþykkt á Alþingi 2019 skráðu alþingismenn í nefndaráliti: „að ekki sé langt þangað til eldi á frjóum laxi verði eingöngu stundað í lokuðum og hálflokuðum kvíum. Að því bæri að stefna“.

Þetta sagði líka Atli Eide, fyrrum forstjóri norska eldisrisans Mowi, móðurfyrirtæki Arctic Fish, og taldi sjókvíaeldið ósjálfbært og með of mikla tíðni slysasleppinga. Hann gaf opna eldinu 10 ára gálgafrest.

En opinber stefnumótun stjórnvalda tekur ekkert mark á Alþingi eða reynslu eldisiðjunnar, heldur ætlar að leyfa óbreytta starfsemi svo norskir eldisrisar geti farið sínu fram, hér eftir sem hingað til.

Opið sjókvíaeldi er tímaskekkja, ósamboðið náttúruvernd nútímans og verður stöðvað fyrr eða síðar, ef ekki af stjórnmálamönnum eða almenningi sem neitar að borða þessar eiturböðuðu og lúsétnu afurðir, þá mun íslensk náttúra sjá um það.

Aumkunnarvert er að sjá hvernig norsku eldisrisarnir beita íbúum eldisbyggðanna fyrir sig með skefjalausum hótunum um atvinnumissi og byggðahrun, ef þeir standi sig ekki í baráttunni fyrir þá til frekari sóknar og gróða.

Núna er stærsta verkefnið í tengslum við sjókvíaeldið að undirbúa öflugar mótvægisaðgerðir með atvinnuuppbyggingu í eldisbyggðunum til að taka við, þegar opna eldinu verður hætt og norsku eldisrisarnir leggjast á flótta.

Höfundur er formaður Umhverfissamtakanna Laxinn lifi og í stjórn Landssambands Veiðifélaga.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×