Rafíþróttir

Dusty og Saga ósigruð í BLAST-undankeppninni

Snorri Már Vagnsson skrifar
Dom og Eddezenn, leikmenn Saga og Dusty.
Dom og Eddezenn, leikmenn Saga og Dusty.

Tvær umferðir fóru fram í íslenska BLAST-umspilinu í Counter-Strike í kvöld. Öll lið Ljósleiðaradeildarinnar voru skráð til leiks og mættu þau öll til leiks í kvöld. Fyrri umferð kvöldsins var spiluð kl. 19:00 og fóru allir leikir fram á sama tíma.

Úrslit fyrstu umferðar:

Þór 7-13 Saga

Ármann 13-3 Atlantic

NOCCO Dusty 13-5 ÍA

FH 11-13 Young Prodigies

Sigurlið fyrri umferðar mættu svo hvoru öðru og spiluðu þá tapliðin upp á að halda sér í keppninni. Viðureignir seinni umferðar voru allar spilaðar í BO3, en þá þarf lið að sigra tvo leiki af Counter-Strike til að hafa sigur í viðureigninni.

Úrslit annarrar umferðar:

Young Prodigies 0-2 NOCCO Dusty

Þór 2-Atlantic

Saga 2-0 Ármann

FH 2-0 FH

Dusty og Saga sigruðu alla leiki sína í báðum umferðum og tryggja sér því sæti í undanúrslitum á laugardaginn næstkomandi þann 19. nóvember.

Fimmtudaginn 16. nóvember mætast svo FH-Young Prodigies og Ármann-Þór og berjast liðin þá um að fá að mæta Sögu og Dusty í undanúrslitum.

Fylgjast má með stöðu undankeppninnar hér.






×