Rafíþróttir

Þór og Young Prodigies komnir í undan­úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Allee og Blick báru sigur af velli í kvöld.
Allee og Blick báru sigur af velli í kvöld. Rafíþróttasamband Íslands

Þórsarar og Young Prodigies báru sigur úr býtum er liðin mættu Ármanni og FH í undankeppni BLAST fyrr í kvöld.

Leikirnir voru spilaðir eftir BO3-kerfi þar sem lið þarf að sigra tvo Counter-Strike leiki til að sigra viðureignina. Ungstirnin í Young Prodigies sigruðu FH-inga 2-0 í seríu sem var þó langt frá því að vera einstefna, en fyrri leikurinn fór í framlengingu.

Þór sigruðu svo sína viðureign gegn Ármanni 2-1, þar sem Ármenningar jöfnuðu seríuna eftir tap í fyrsta leik.

Liðin spila því á úrslitakvöldinu á sunnudaginn næstkomandi þann 19. nóvember. Saga verður liðið sem tekur á móti Young Prodigies en Þórsarar mæta NOCCO Dusty.






×