Skoðun

Pabbi segir, mamma segir – bráðum koma dýrð­leg jól

Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar

Það er réttur barna að fá fræðslu um það samfélag sem þau búa í.

Við búum í samfélagi þar sem meirihluti þjóðarinnar er skráður í Þjóðkirkjuna. Í skólum landsins fá börn að kynnast helstu trúarbrögðum heimsins. Þau fá fræðslu sem þýðir að hugtök eru útskýrð sem tengjast efninu og viðfangsefnið útskýrt á einfaldan hátt.

Þetta er liður í læsi. Liður í því að einstaklingar séu læsir á umhverfi sitt og skilji við hvað er átt þegar ákveðin málefni ber á góma.

Það að vita eykur líkur á að einstaklingar geti tekið þátt í samfélagslegri umræðu og geti haft áhrif og verið þátttakendur í þjóðfélaginu. Það skiptir máli að vera hluti af samfélagi og skilja það.

Það eru ekki bara trúarbrögð sem verða eldfim í umræðunni heldur mun fleiri málefni.

Við sem tilheyrum samfélagi höfum ólíkar skoðanir og ólíka sýn á hluti og þannig á það að vera.

Það er hlutverk okkar sem störfum í skólum að fræða börn án þess að innprenta. Það er okkar að leiða umræðuna inni í skólunum án þess að dæma. Sem kennari hér á landi þá ber mér að vinna eftir Aðalnámskrá grunnskóla og þar sem ég starfa hjá Reykjavíkurborg þá ber mér að vinna eftir þeim stefnum sem borgin innleiðir. Leiðarljós kennara og rauði þráðurinn í öllu skólastarfi er mennskan og læsi í víðu samhengi.

Þessu tengjast fjölmargir aðrir þættir því að samfélagið okkar er allskonar.

Börn eru einstaklingar sem fæðast í þennan heim og mótast af því umhverfi sem þau eru alin upp í. Menntastefnur eru gerðar til að jafna stöðu barna. Þannig að þau séu upplýst og geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir þegar þau eldast og verið þátttakendur í lýðræðislegu þjóðfélagi.

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft er máltæki sem oft er gripið til. Það skiptir máli fyrir börn að hafa góðar fyrirmyndir en það er ekki síður mikilvægt fyrir börn að fræðast um þann heim sem þau lifa í. Fá fræðslu frá fagmenntuðum óháðum aðilum sem hafa lært að vinna með börnum og eiga samtal um málefnið í hópi jafningja.

Niðurstöður PISA 2022 sýna að læsi íslenskra barna hefur hrakað og þau virðast einnig hafa minni samkennd en jafnaldrar þeirra í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Læsisfærni er þjálfuð allan vökutíma barns og börn rækta með sér samkennd ef þau fá að fræðast um tilveru sem er ólík þeirra eigin. Fáfræði elur á fordómum. Ef barn er ekki frætt þá einangrast það í sínum eigin heimi og án orða fer það að nota líkamann til að koma sínu á framfæri.

Setjum börnin okkar í fyrsta sæti og hjálpum þeim að skilja þennan heim sem við lifum í miðað við þeirra þroska.

Gleðileg jól og góðar samverustundir.

Höfundur er sérkennari í grunnskóla og sáttamiðlari hjá Sátt.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×