Öllu til tjaldað í steypiboði Birgittu Lífar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. desember 2023 10:33 Öllu var tjaldað til þegar Birgitta Líf og Enok Jónsson fögnuðu komu barnsins síns. Instagram Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson héldu í gær steypiboð eða það sem kallað er á ensku „baby shower“ og var öllu tjaldað til. Parið greindi frá því að þau ættu von á barni í ágúst.
Birgitta Líf er markaðsstjóri World Class og byrjaði parið að rugla reitum saman í ársbyrjun 2022. Boðið var upp á dýrt kampavín þó tilvonandi móðirin mætti ekki fá sér.Instagram Það vakti mikla athygli í september síðastliðinn þegar tilkynnt var um kyn barnsins mep hjálp þyrlu sem dreifði bláum reyk úr lofti yfir heimili þeirra í Skuggahverfinu. Samkvæmt bláa litnum mátti leiða líkur að því að þau ættu von á dreng. Gestir spreyttu sig á að spá fyrir ýmsum eiginleikum barnsins.Instagram Af því sem sjá má af myndum af viðburðinum sem birtar voru á Instagram var boðið upp dýrindis veitingar. Tertur og fínt kampavín voru á boðstólum og gestir komu með gjafir handa barninu ófædda. Einnig voru miðar þar sem gestir gátu giskað á nafn barnsins, hvenær það kæmi í heiminn, augnlit, hárlit og fleira. Það hefur vakið athygli undanfarin ár að getnaður og öll þau nær endalausu veisluhöld sem haldin eru í kringum fæðingu séu gríðarlega kostnaðarsöm fyrir vini og ættingja. Ofan á hina hefðbundnu sængur- og skírnargjöf tíðkist nú sums staðar að gefa gjafir í kynjaveislum og steypiboðum, innfluttum bandarískum hefðum.
Ástin og lífið Barnalán Tímamót Mest lesið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Lífið Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Húðrútína Birtu Abiba Lífið Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Bíó og sjónvarp Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Lífið Fleiri fréttir Gellur tóku yfir Gamla bíó Hélt að hann væri George Clooney Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Einstakur garður í Mosfellsbænum Leggja undir sig spinningshjólin og upphífingarstangirnar á tónleikunum Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Húðrútína Birtu Abiba Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Söngelskir nemendur í Menntaskólanum að Laugarvatni Inga Sæland vill komast í fjármálaráðuneytið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Hefndi sín með því að missa meydóminn Spurt var um fyrirbæri sem Tommi á Búllunni framkvæmdi fyrst hér á landi Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“ Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Draumaherbergi hjá fimmtugri og fabjúlöss Kynbomba og reynsluboltar í Melodifestivalen Söfnunarþáttur UNICEF í beinni útsendingu á þremur stöðvum í einu Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lyftu barninu upp eins og hann væri Simbi Lára og lyfjaprinsinn opinbera kynið Tilfinningar þvælast fyrir tiltektinni Frægar í fantaformi Ofurpar úr tennisheiminum á Íslandi Gervigreindin stýrði ferðinni Sjá meira