Skoðun

Bifreiðastyrkir til fólks með hreyfi­hömlun hækkaðir í fyrsta sinn í 8 ár

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Þau tímamót urðu um áramótin að bifreiðastyrkir til fólks með hreyfihömlun hækkuðu í fyrsta sinn í 8 ár. Þetta gerðist í kjölfar reglugerðar sem ég undirritaði nú í desember. Reglugerðin tryggir einnig að framvegis verða hækkanirnar árlega en ekki á margra ára fresti líkt og verið hefur. Enn fremur er nú tryggt að hreyfihamlaðir einstaklingar geta betur en áður tekið þátt í orkuskiptum í samgöngum.

Gott samstarf hefur verið við ÖBÍ-réttindasamtök um þessar þýðingarmiklu breytingar og ég fagna því að geta með þessu bætt aðgengi fatlaðs fólks að samfélaginu, aukið stuðning við tekjuminna fólk og stuðlað að auknum orkuskiptum og réttlátum grænum umskiptum í samfélaginu.

Fyrsta hækkun í átta ár

Hækkanirnar tóku gildi þann 1. janúar síðastliðinn. Fjárhæð uppbótar vegna bifreiðakaupa er nú 500.000 kr. og fjárhæð uppbótar vegna kaupa á fyrstu bifreið er 1.000.000 kr. Styrkur til kaupa á bifreið fyrir þau sem eru verulega hreyfihömluð nemur eftir hækkunina 2.000.000 kr. Fjárhæðirnar hækkuðu síðast í nóvember 2015. Þess ber að geta að uppbætur og styrkir vegna bifreiðakaupa hafa ekki áhrif á fjárhæðir annarra greiðslna almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.

Þá hefur hámarksfjárhæð styrks til kaupa á sérútbúinni bifreið hækkað í 7.400.000 kr. en þar er um að ræða einstaklinga sem vegna mikillar fötlunar komast ekki af án sérútbúinnar bifreiðar. Upphæð þessa styrks hækkaði síðast í júní 2020. Loks er 10% hærri styrkur fyrir sérútbúna hreina rafbíla samkvæmt reglugerðinni og hámarksfjárhæð 8.140.000 kr.

Framvegis verði hækkanir árlega

Með reglugerðarbreytingunni hef ég einnig gert þá mikilvægu breytingu að hækkanir á uppbótum og styrkjum vegna bifreiðakaupa verða í samræmi við hækkun bóta almannatrygginga á ári hverju. Þannig er sem fyrr segir tryggt að hækkanirnar eigi sér stað árlega sem festir í sessi reglubundnar hækkanir á þessum mikilvæga stuðningi við fatlað fólk.

Stuðlað að réttlátum grænum umskiptum

Markmiðið er að hreyfihömluðum einstaklingum gefist í auknum mæli kostur á að fjárfesta í umhverfisvænni bifreiðum sem hafa minni neikvæð áhrif á loftslagið. Almennt gildir að einstaklingar geta nú sótt um styrk til Orkusjóðs til rafbílakaupa, allt að 900 þúsund krónur, að því gefnu að kaupverð bifreiðar sé undir 10.000.000 krónum.

Sérútbúnar bifreiðar fyrir hreyfihamlaða eru hins vegar gjarnan dýrari en þetta hámark kaupverðs og því er það fellt niður í tilfelli sérútbúinna hreinna rafbíla. Auk þess gerir reglugerð mín ráð fyrir sérstökum aukastyrk fyrir þessar bifreiðar þar sem að þær eru dýrari í verði. Hreyfihamlaður einstaklingur sem kaupir sérútbúinn hreinan rafbíl getur þannig hvort tveggja fengið 900.000 kr. styrk úr Orkusjóði og allt að 8.140.000 kr. styrk á grundvelli framangreindrar reglugerðar.

Þessi stefnubreyting er í samræmi við loftslagsmarkmið íslenskra stjórnvalda og aukna félagslega sjálfbærni. Með þessu stuðlar ríkisstjórnin að því að tiltekinn hópur sem margt tekjulægra fólk tilheyrir geti frekar tekið þátt í orkuskiptum og þar með að réttlátari grænum umskiptum.

Höfundur er félags- og vinnumarkaðsráðherra og þingmaður Vinstri grænna í SV-kjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×