Rafíþróttir

Breiða­blik sigruðu ÍBV með yfir­burðum

Snorri Már Vagnsson skrifar
Viruz, Wnkr og Pjakkur voru í stuði í kvöld er Breiðablik rústaði liði ÍBV í Counter-Strike.
Viruz, Wnkr og Pjakkur voru í stuði í kvöld er Breiðablik rústaði liði ÍBV í Counter-Strike.

Breiðablik mættu ÍBV í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike í kvöld. ÍBV sá aldrei til ljóss í leiknum þar sem þeir grænu réðu öllum ríkjum.

Leikurinn var spilaður á Ancient. ÍBV byrjuðu leikinn í vörn en Blikar hófu leikinn með betri fótinn fyrir framan sig og sigruðu fyrstu tvær lotur leiksins. ÍBV bitu til baka í 1-2 en sigurþefurinn átti eftir að verða vandfundinn í kjölfarið. Blikar fundu sigur í næstu 8 lotum og komust í stöðuna 1-10 áður en Eyjamenn fundu aftur lotusigur í síðustu tilraun fyrri hálfleiks. Ljóst var að ÍBV þurfti á kraftaverki að halda í seinni hálfleik til að eiga séns á stigi.

Staðan í hálfleik: ÍBV 2-10 Breiðablik

Allt kom þó fyrir ekki í seinni hálfleik. Sókn Eyjamanna var bitlaus gegn þéttri vörn Blika. Engar lotur fóru í poka ÍBV og Breiðablik sigraði þær þrjár lotur sem upp á vantaði til sigurs. Leikmenn blika voru afar jafnir á fellutöflunni en allir náðu þeir yfir 10 slíkum.

Lokatölur: ÍBV 2-13 Breiðablik

Slæmt gengi ÍBV verður æ lengra, en þeir hafa enn ekki sigrað leik í deildinni. Einu stig liðsins voru fengin í sjálfdæmdum ósigrum Atlantic er þeir hættu leik á tímabilinu. Breiðablik heldur áfram að sækja í sig veðrið í miðjuslagnum en sitja þeir nú í fimmta sæti með 18 stig.






×