Skoðun

Virkjum krafta frjálsra fé­laga­sam­taka

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Í dag, 27. febrúar, er alþjóðlegur dagur frjálsra félagasamtaka. Við erum mörg sem höfum tekið þátt í starfi félagasamtaka einhvern tímann á ævinni. Störf félagasamtaka mynda verðmætan félagsauð fyrir samfélagið, fólk með sambærileg lífsgildi og áhugamál. Það að vera í félagi er þroskandi og gefandi fyrir einstaklinginn en ekki síður gegna frjáls félagasamtök lykilhlutverki í gangverki lýðræðis og almannaheillastarfsemi. Í gegnum grasrótarstarf er hægt að hafa mótandi áhrif á samfélagið og láta gott af sér leiða.

Starfsemi frjálsra félagasamtaka ómetanleg samfélaginu

Frjáls félagasamtök vinna ómælda og verðmæta vinnu í þágu samfélags okkar og almannahagsmuna, drifin áfram af hugsjónum um réttlátari og betri heim. Oft fylla þau í skörð í þjónustu þar sem stjórnvöld hafa enn ekki komið að, eða byrja á nýjungum sem síðar eiga eftir að skila sér inn í „kerfið“. Almannaheillasamtök koma málum á dagskrá og veita stjórnvöldum og fyrirtækjum afar þýðingarmikið aðhald.

Hef mætt ákalli um aukinn stuðning og styrkara rekstrarumhverfi

Mörg félagasamtök búa ekki við nægan fyrirsjáanleika í rekstri því nauðsynlegir styrkir eru veittir til skamms tíma í senn, oft ekki lengur en til eins árs. Ég hef lagt áherslu á það sem ráðherra að mæta óskum um samninga til lengri tíma. Sem umhverfis- og auðlindaráðherra jók ég einnig rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka úr 13 m.kr. árlega í 50 m.kr. sem fór til um 20-25 félagasamtaka. Sem félags- og vinnumarkaðsráðherra tók ég þá ákvörðun að skipta velferðarstyrkjum sem veittir hafa verið til margra ára upp í verkefnastyrki og rekstrarstyrki og hefur það mælst vel fyrir. Ég hef tvöfaldað fjármagn til velferðarstyrkja á þessu kjörtímabili, úr 107 milljónum króna árið 2022 í 220 milljónir króna í ár, auk þess sem samningum við frjáls félagasamtök sem sinna margvíslegri velferðarþjónustu utan þessara styrkja hefur fjölgað.

Skattaafsláttur vegna framlaga til almannaheillafélaga

Það er rík hefð fyrir því á Íslandi að almenningur styðji við frjáls félagasamtök sem starfa að almannaheillum með fjárframlögum. Til að hvetja til frekari styrkja voru gerðar breytingar á skattaumhverfi frjálsra félagasamtaka af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Breytingarnar fólu í sér að einstaklingar geti fengið skattaafslátt upp á allt að 350.000 krónur á ári vegna framlaga til almannaheillafélaga. Með þessu er fólki gert auðveldara um vik til að styrkja almannaheillastarfsemi. Árið 2022 nýttu 96.000 einstaklingar sér þetta úrræði en samanlagt styrktu einstaklingar og fyrirtæki almannaheillasamtök um 6,6 milljarða króna.

Frjáls félagasamtök eru driffjöður framfara – tökum þátt

Ég hvet öll til þess að nýta sér lýðræðislegan rétt sinn til að ganga í og taka þátt í starfi frjálsra félagasamtaka, sama hvort það er björgunarsveit, góðgerðasamtök, líknarfélög, náttúruverndarsamtök, stjórnmálasamtök eða önnur, allt eftir áhuga og aðstæðum hvers og eins. Þannig virkjum við kraftinn sem í frjálsum félagasamtökum býr og í okkur sjálfum.

Til hamingju með alþjóðlegan dag frjálsra félagasamtaka.

Höfundur er félags- og vinnumarkaðsráðherra og þingmaður Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×