Skoðun

Milljarðaplástur

Natan Kolbeinsson skrifar

Það tókst! Aðilar vinnumarkaðarins og breiðfylkingin (fyrir utan VR) komust að samkomulagi og undirrituðu kjarasamninga. Til að það tækist þurfti samt aðkomu frá ríkisstjórninni upp á 80 milljarða króna - og hún svaraði kallinu.

Yfirlýst markmið er að ná fram langtímasamningum á vinnumarkaði, minnka verðbólgu og koma á stöðugleika. Ég mun seint skilja hvernig 80 milljarða innspýting í hagkerfið, sem ríkið þarf að öllum líkindum að fjármagna með lántöku, eigi að verða til þess að minnka verðbólgu. En það er önnur saga.

Það sem vakti athygli mína, öðru fremur, er það sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að kalla tilraunaverkefni til fjögurra ára um ókeypis skólamáltíðir í grunnskólum. Í stuttu máli lofar ríkið að greiða 75% af kostnaði við skólamáltíðir, á móti 25% framlagi sveitarfélaga, í fjögur ár. Hvað gerist að þeim tíma loknum? Ég held að við getum öll getið okkur til um að ríkið muni draga sig út úr tilraunaverkefninu og skilji það eftir óskipt í höndum sveitarfélaganna. Sveitarfélögin, sem eru orðin ansi vön því að fá verkefni frá ríkinu í fangið án þess að þeim fylgi króna. Sömu fjármununum væri betur varið beint til sveitarfélaga, sem gætu þá sjálf ráðið hvernig væri rétt að ráðstafa þeim til hagsbóta fyrir íbúa sína.

Nú þegar eru kerfi til staðar sem tryggir mörgum börnum skólamáltíð. Oft á tíðum er um að ræða einu góðu máltíðina sem þau fá yfir daginn. Þau kerfi skipta máli og að sjálfsögðu viljum við tryggja að þessi kerfi grípi alla þá sem þurfa á því að halda. Þess vegna skiptir líka máli að vegferð eins og þessi sé skoðuð í þaula, til að mynda út frá gæðum og kostnað. Eða út frá tekjum fjölskyldna til að tryggja sem besta nýtingu opinberra fjármuna.

Við hljótum öll að spyrja okkur af hverju enginn var að ræða um ókeypis skólamáltíðir fyrir tveimur vikum síðan en núna sé það allsráðandi samtal ríkisstjórnar sem stendur á brauðfótum við óánægða sveitarstjórnarmenn úr þeirra eigin röðum og stéttarfélög með veikt umboð. Gæti verið að þetta sé bara enn einn milljarða króna plásturinn á samstarf ríkisstjórnar, sem hefði kannski gott að því að viðurkenna frekar ósigur og boða til kosninga?

Höfundur er formaður Viðreisnar í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×