Allhvöss norðaustanátt og snjór norðan- og austantil Atli Ísleifsson skrifar 8. apríl 2024 07:13 Frost á landinu verður núll til sex stig, en sunnantil verður hitinn eitt til sex stig. Vísir/Vilhelm Suðaustur af landinu er nú djúp lægð sem heldur að okkur allhvassri norðaustanátt. Geri má ráð fyrir snjókomu á Norður- og Austurlandi, en yfirleitt bjartviðri sunnanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að það dragi heldur úr vindi og úrkomu í kvöld, en rigning eða slydda syðst. Frost null til sex stig, en hiti eitt til sex stig sunnantil. Á morgun verður norðaustan 5-13 m/s og slydda eða rigning með köflum sunnantil, en birtir smám saman til á norðanverðu landinu. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan- og norðaustanátt, 5-13 m/s, hvassast norðvestantil og við suðausturströndina. Skýjað og þurrt að kalla norðan- og austanlands og vægt frost, en lítilsháttar slydda eða rigning með suðurströndinni og hiti 0 til 4 stig. Á miðvikudag: Austlæg átt, 3-10 m/s. Skúrir eða slydduél sunnan- og vestanlands en skýjað með köflum norðanlands. Austan 10-15 og dálítil rigning eða snjókoma sunnanlands um kvöldið. Hiti 1 til 4 stig, en vægt frost norðantil. Á fimmtudag: Austlæg átt með rigningu eða slyddu en snjókomu norðanlands. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Norðaustlæg átt með snjókomu norðanland, en suðlæg átt og slydduél sunnanlands. Á laugardag: Útlit fyrir norðanátt og snjókomu. Frost 1 til 12 stig. Á sunnudag: Líklega norðlæg átt og él eða snjókoma á norðanverðu landinu, en að mestu bjart sunnantil.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Glæný könnun Maskínu: Fylgi Framsóknar og Flokks fólksins á uppleið Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Opnunin á Blönduhlíð var engin opnun Innlent Bein útsending: Kappræður flokksleiðtoga Innlent Erfitt að útskýra fyrir þriggja ára að það verði ekkert af afmæli í leikskólanum Innlent Sækja óvænt og hratt að Aleppo Erlent Misbýður ummæli um samhljóm stefnu sinnar og Breiviks Innlent Ósennilegar skýringar á því hvernig DNA endaði á kynfærum Innlent Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Erlent Fleiri fréttir Kaldri norðlægri átt beint til landsins Gul viðvörun á Vestfjörðum Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Hiti að sex stigum Norðanátt og éljalofti beint til landsins Áfram kalt og bætir í vind á morgun Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Áfram köld og norðlæg átt Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Allt að tuttugu stiga hiti Næsta lægð væntanleg á morgun Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Bætir smám saman í vind Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Sjá meira