Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Víkingi 7. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með tveimur leikjum sunnudaginn 21. apríl. Íþróttadeild spáir Víkingi 7. sæti Bestu deildarinnar í sumar og nýliðarnir haldi sér uppi. Síðasta sumar var draumi líkast í Víkinni en karla- og kvennalið félagsins unnu þrjá af fjórum stóru titlunum sem í boði voru. Kvennalið Víkings skrifaði sig á spjöld sögunnar með því að verða fyrsta B-deildarliðið til að verða bikarmeistari. Víkingar unnu Blika, 3-1, í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Til að toppa sumarið vann Víkingur svo einnig Lengjudeildina og tryggði sér það með sæti í Bestu deildinni. grafík/bjarki Margar stjörnur urðu til hjá Víkingi á síðasta tímabili. Má þar nefna markvörðinn unga Sigurborgu Kötlu Sveinbjörnsdóttur, hægri bakvörðinn Emmu Steinsen Jónsdóttur, hinar markheppnu Bergdísi Sveinsdóttur og Sigdísi Evu Bárðardóttur. Og svo auðvitað fyrirliðann Nadíu Atladóttur sem skoraði tvö mörk í bikarúrslitaleiknum. Hún er hins vegar horfin á braut en fyrir nokkrum dögum var samningi hennar við Víking rift og hún gekk í kjölfarið í raðir Vals. Það er mikill missir af Nadíu, bæði sem leikmanni, leiðtoga og eins konar andliti liðsins. grafík/bjarki Víkingur saknaði hennar þó ekki í Meistarakeppni KSÍ þar sem liðið vann Íslandsmeistara Vals í vítaspyrnukeppni. Víkingur vann einnig Reykjavíkurmótið og vann því tvo af þremur titlum sem í boði voru í vetur. Í vetur fékk Víkingur tvo leikmenn frá KR, Kristínu Erlu Ó. Johnsen og Gígju Valgerði Harðardóttur, markvörðinn Birtu Guðlaugsdóttur frá Val, Mist Elíasdóttur frá Fram og svo Shainu Ashouri sem lék svo vel með FH á síðasta tímabili. Svo bættist bandaríski varnarmaðurinn Ruby Diodati við hóp Víkings í síðustu viku. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnufélagið Víkingur (@vikingurfc) Í liði Víkings er ágætis blanda af yngri og lofandi leikmönnum annars vegar og eldri og reyndari hins vegar. Ljóst er að mikið mun mæða á Ernu Guðrúnu Magnúsdóttur og Selmu Dögg Björgvinsdóttur. Þær hafa reynslu úr Bestu deildinni og reyndust Víkingi frábærlega í fyrra. Lykilmenn Erna Guðrún Magnúsdóttir, 26 ára varnarmaður Selma Dögg Björgvinsdóttir, 26 ára miðjumaður Sigdís Eva Bárðardóttir, 17 ára sóknarmaður Fylgist með Áðurnefnd Sigurborg Katla átti frábært sumar í marki Víkings í fyrra og sló í gegn. Hún er fædd 2006 og er einn af mörgum efnilegum markvörðum sem við eigum. Sigurborg Katla fær mikla eldskírn í sumar verður að eiga gott tímabil ef Víkingur ætlar að gera sig gildandi í deild þeirra bestu. Í besta/versta falli Víkingur ætti að vera með nógu sterkt lið til að sleppa við mestu fallbaráttuna en það virðist standa Tindastóli, Fylki og Keflavík framar. Víkingar leyfa sér svo alveg örugglega um að dreyma og vonast til að meðbyrinn frá síðasta tímabili og sigrinum í Meistarakeppninni fleyti þeim inn í úrslitakeppni efri hlutans. Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Tindastóli 8. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 18. apríl 2024 10:00 Besta-spáin 2024: Ætla að gera falldrauginn afturreka úr Árbænum Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fylki 9. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 17. apríl 2024 12:01 Besta-spáin 2024: Blóðtakan of mikil Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Keflavík 10. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 17. apríl 2024 10:00 Mest lesið Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Körfubolti Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Fótbolti „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir dullað sér út“ Körfubolti Ætlaði að ná hundraðasta sigrinum en endaði upp á spítala Sport Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ Handbolti Rautt spjald eftir þrjátíu sekúndur en unnu samt úrslitaleikinn Fótbolti Tekur barnið sitt úr leikskóla svo að skíðakonan geti haldið jólin með þeim Sport
Erna Guðrún Magnúsdóttir, 26 ára varnarmaður Selma Dögg Björgvinsdóttir, 26 ára miðjumaður Sigdís Eva Bárðardóttir, 17 ára sóknarmaður
Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Tindastóli 8. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 18. apríl 2024 10:00
Besta-spáin 2024: Ætla að gera falldrauginn afturreka úr Árbænum Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fylki 9. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 17. apríl 2024 12:01
Besta-spáin 2024: Blóðtakan of mikil Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Keflavík 10. sæti Bestu deildar kvenna í sumar. 17. apríl 2024 10:00