Skoðun

Fram­tíð innri markaðarins

Gunnar Bragi Sveinsson skrifar

Ríkisútvarpið greindi frá því að nýlega kom út skýrslan „Much more than a Market“ eftir Enrico Letta, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu. Letta var falið af Evrópusambandinu að koma með tillögur m.a. um hvernig samkeppnishæfni ESB sé tryggð til framtíðar. Fjallar hann um innri markaðinn sem tæki og nánast sem „auðlind“ sem sambandið getur nýtt betur, ekki síst til að bæta samkeppnishæfni sína gagnvart Asíu og N-Ameríku.

Ein af megin tillögum Letta er að samin sé ítarleg stefna fyrir innri markaðinn. Einnig má lesa má af skýrslu Letta að skriffinnska og ósveigjanleiki sé til trafala. Evrópsk fyrirtæki séu lítil í samanburði við fyrirtæki í Bandaríkjunum og Kína og af þeim orsökum hallar verulega á Evrópsku fyrirtækin. Þau séu á eftir í nýsköpun, framleiðni ofl. sem á endanum dregur úr öryggi ESB. Því þurfi að aðstoða Evrópsk fyrirtæki við að verða stærri og þannig auka efnahagslegt öryggi. Þá segir Letta að markaðir fjármála, fjarskipta og orku verði að þróast í áttina að samþættingu á ESB svæðinu fram yfir þarfir einstakra ríkja svo svæðið standist samkeppni.

Annar fyrrum ítalskur forsætisráðherra, Mario Draghi er einnig að vinna skýrslu en mun hann einkum vera að skoða samkeppnishæfni sambandsins. Það er í sjálfu sér áhugavert að tveir fyrrum forsætisráðherrar Ítalíu séu að skoða sömu, eða svipaða hluti. Áhugaverðara verður þó að sjá hvað Evrópusambandið gerir á endanum til bregðast við minnkandi samkeppnishæfni. Mun svæðið rétta úr kútnum eða staðna í deilum um leiðir og lausnir?

Fyrir okkur sem aðila að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES), skiptir miklu að áfram sé fylgst náið með hver stefnan er að þróast enda Ísland aðili að innri markaðnum. Skýrsla Letta er yfirgripsmikil og kemur inn á margt fleira en hér hefur verið nefnt en sé það rétt hjá Letta að hið evrópska kerfi sé of flókið og þungt ætti það að hringja viðvörunarbjöllum víða, ekki síst þar sem talað er fyrir nýju regluverki.

Aukinn samruni og samþætting með það að markmiði að stækka og styrkja Evrópsk fyrirtæki getur augljóslega haft áhrif hér á landi. Hvort sem horft er til regluverks sem okkur ber að taka upp eða útflutnings á vörum eða þjónustu. Það verður áhugavert að fylgjast með þessari þróun í ljósi kosninga sem eru víða á döfinni í Evrópu sem og þeim flóknari alþjóðapólitískum veruleika sem við búum nú við.

Höfundur starfar sem ráðgjafi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×