Skoðun

Sann­gjarnt líf­eyris­kerfi: Það er dýrara að vera fatlaður

Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Á Alþingi Íslendinga er nú til meðferðar frumvarp sem myndi fela í sér einhverjar mestu breytingar á örorkulífeyriskerfinu á Íslandi fyrr og síðar verði það samþykkt. ÖBÍ réttindasamtök hafa komið á framfæri fjölda athugasemda og tillagna um breytingar á frumvarpinu.

Meðal þess sem ÖBÍ leggur til er að innleiddur verið nýr óskattskyldur og ótekjutengdur greiðsluflokkur sem hefði þann tilgang að mæta ótilgreindum kostnaði vegna fötlunar.

Hvað efni frumvarpsins varðar hefur ÖBÍ bent á að þrátt fyrir yfirlýsingar flutningsmanna þess um almennar kjarabætur muni margir einstaklingar verða á nánast sama stað í nýju kerfi og þeir myndu vera í núverandi kerfi og að aðrir munu koma verr út í nýju kerfi. Fatlað fólk sem reiðir sig á örorkulífeyri sem sínar einu tekjur til framfærslu fær greiddan óskertan örorkulífeyri. Ef frumvarpið verður óbreytt að lögum mun óskertur örorkulífeyrir til þeirra sem fá greidda heimilisuppbót (eru einhleypir og búa einir) aðeins hækka á bilinu 803 kr. til 6.803 kr. á mánuði. Hækkanir til þeirra sem fá ekki greidda heimilisuppbót og eru meðóskertan örorkulífeyri til framfærslu eru lítið hærri eða á bilinu 30 til 36 þúsund kr. á mánuði. Af þessum fjárhæðum á eftir að draga skatt og því ljóst að um mjög lágar fjárhæðir til hækkunar er að ræða. Það er því ekki að sjá að meðfrumvarpinu sé komið sómasamlega til móts viðþann hóp sem hefur lægstu tekjurnar og hefur enga möguleika til að bæta kjör sín með tekjum annars staðar frá. Innleiðing nýs greiðsluflokks gæti þannig bætt stöðu þessa hóps sem og nýst öðrum fötluðum einstaklingum.

Til að ná markmiði sínu þyrfti greiðsluflokkurinn að vera í upphafi a.mk. 20.000 kr. á mánuði. ÖBÍ bendir á mikilvægi þess að hinn nýi greiðsluflokkur yrði óskattskyldur. Bæði í þeim tilgangi að fjárhæðin skili sér til fatlaðs fólks og ekki síður til að koma í veg fyrir möguleg áhrif til lækkunar annars stuðnings s.s. húsnæðisstuðnings og barnabóta.

Greiðsluflokkurinn hefur annan mjög mikilvægan ávinning en með honum mætti ná fram markmiðum samningsins Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem kveður m.a. á um nauðsyn þess að ríki veiti aðstoð við greiðslu kostnaðar tengdan fötlun. Fyrir íslenskt samfélag myndi slík innleiðing þýða mikilvægt skref í átt að jöfnum tækifærum og bættum lífsgæðum fyrir fatlað fólk. Innleiðing slíks greiðsluflokks væri enn fremur í samræmi við nýlega samþykkta þingsályktun um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027 en þar segir að koma eigi í auknum mæli til móts við ótilgreindan fylgikostnað fötlunar.

ÖBÍ hvetur Alþingi til þess að verða við þessum nýja greiðsluflokki og sýna í verki að því stendur ekki á sama.

Höfundur er formaður ÖBÍ réttindasamtaka.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×