Skoðun

Vel­ferð fólks framar markaðsvæddri netsölu á­fengis

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Það hefur vart farið fram hjá neinum að verslun með áfengi hefur tekið breytingum á undanförnum misserum og árum, án þess að það hafi verið tekin pólitísk ákvörðun um það eða farið fram umræða í samfélaginu svo nokkru nemi. Svokallaðar netverslanir, sem flytja inn áfengi hafa skotið upp kollinum og geyma áfengi á lager og selja í smásölu, og bjóða jafnvel upp á heimsendingu á öllum tímum sólarhringsins. Þessi fyrirtæki fara þannig fram hjá bæði áfengislögum og lýðheilsustefnu stjórnvalda, sem hvoru tveggja leggjast gegn frjálsri smásölu á áfengi. Áfengisauglýsingar hafa einnig tekið að birtast börnum og ungmennum á samfélagsmiðlum, sem er reiðarslag fyrir baráttuna gegn áfengis- og vímuefnanotkun þessa viðkvæma hóps. Hættunni er hreinlega ekið heim að dyrum.

Lýðheilsa varðar okkur öll

Í störfum mínum sem félags- og vinnumarkaðsráðherra hef ég ekki farið varhluta af því að sjá neikvæðar félagslegar afleiðingar óhóflegrar áfengisneyslu. Slíkt má t.d. sjá innan fjölskyldna þegar neysla eins hefur neikvæð áhrif á aðra og þá sérlega á konur og börn. Ofbeldi í nánum samböndum og vanræksla barna eru dæmi um slíkan skaða. Óhófleg neysla áfengis veldur einstaklingum, fjölskyldum og samfélögum skaða m.a. vegna heilsubrests og félagslegra vandamála.

Samkvæmt landlækni var kostnaður heilbrigðiskerfisins árið 2021 vegna áfengisneyslu a.m.k. 100 milljarðar króna. Það er því líka eftir miklu að slægjast efnahagslega fyrir samfélagið að draga úr óhóflegri áfengisneyslu. Með minni neyslu og minna aðgengi að áfengi mun auk þess félagslegum vandamálum fækka, slys verða fátíðari, fleiri verða vinnufær, fólki almennt líða betur og opinbert fjármagn sparast. Það eru nefnilega bara seljendurnir sem græða á auknu aðgengi að áfengi, ekki fólkið í landinu, ekki samfélagið.

Einkafyrirtæki eru ekki hafin yfir lýðheilsu

Áfengisstefna okkar Íslendinga hefur verið skýr og byggir á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð. Henni er ætlað að verja félagslega velferð. Stefnan kemur m.a. fram í lögum um verslun með áfengi og tóbak. Rekstur ÁTVR er hluti þeirrar stefnu og gengur út á að stýra og takmarka aðgengi að áfengi og draga þannig úr skaðlegum áhrifum. Einnig að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis. Við í Vinstri grænum teljum mikilvægt að víkja ekki frá gildandi áfengisstefnu og gildandi lögum.

Það er því líka skaðlegt samfélaginu að selja áfengi í matvöruverslunum því áfengi er engin venjuleg söluvara. Nú þegar er nægt aðgengi að áfengi með rekstri ÁTVR og markaðssamkeppni óþörf. ÁTVR dugar. Þannig á ekki að lögfesta heimild til reksturs innlendra vefverslana með áfengi í smásölu til neytenda. Ef það er gert stóreykst aðgengið og markaðsöflin fá lausan tauminn til að koma sem mestu áfengi út til neytenda. Við eigum að verja ungmenni og veita þeim frelsi frá ágengum markaðsöflum áfengisiðnaðarins. Velferð fólks á að ganga framar markaðsvæddri netsölu áfengis.

Aukið aðgengi að áfengi er skaðlegt samfélagi okkar. Fyrir því eru margvísleg lýðheilsurök. Þetta vitum við. Þetta er ekki mikið flóknara en það.

Formaður Vinstri grænna og félags- og vinnumarkaðsráðherra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×