Skoðun

Fyrsta borgaraþing Reykja­víkur

Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Fyrsta borgaraþing Reykjavíkur mun eiga sér stað í dag í Tjarnarsal Ráðhússins. Borgaraþing er nýr lýðræðisvettvangur og ein aðgerða fyrstu lýðræðisstefnu Reykjavíkur, en ég leiddi vinnu við gerð hennar á síðasta kjörtímabili og fagna því þessum tímamótum alveg sérstaklega.

Málefni barna 0-6 ára verða til umfjöllunar á borgaraþinginu og er það hluti af stefnumótun um málaflokkinn en ég er svo heppin að fá að taka beinan þátt í þeirri vinnu í þverpólitískum stýrihópi. Það er nauðsynlegt að heyra frá foreldrum, íbúum og fagfólki í slíkri vinnu svo hún nái markmiðum sínum um að bæta aðstæður og velferð barnanna í borginni.

Lýðræði og samráð er ekki upp á punt heldur nauðsynlegur og órjúfanlegur hluti skilvirkrar straumlínustjórnunar með gæði þjónustu í fyrirrúmi. Eitt helsta leiðarljós lýðræðisstefnunnar er að efla gæði í ákvarðanatöku með því að fá fram og taka tillit til mismunandi sjónarhorna og hagsmuna.

Meginmarkmið lýðræðisstefnu Reykjavíkur eru undirstöður í hverju lýðræðislegu ákvarðanatökuferli - að hlusta, rýna, breyta og miðla. Sumsé að hlusta og afla upplýsinga um það sem má betrumbæta, að rýna svo í þær upplýsingar, að breyta í kjölfarið byggt á fenginni vitneskju þegar það á við og að endingu að miðla niðurstöðunni og almennt viðhafa gagnsæi til að styrkja lýðræðislegt aðhald og sá fræjum til frekari jákvæðra breytinga.

Borgaraþingið í dag snýst um að borgin vill hlusta á þau sem best þekkja til þess sem vel hefur tekist og þess sem betur má fara þegar kemur að aðstæðum og velferð ungra barna og barnafjölskyldna. Við viljum halda vel utan um börnin okkar og barnafjölskyldur og þess vegna erum við að vinna stefnu og aðgerðir til að geta betur mætt þörfunum.

Börnin okkar eru það allra dýrmætasta sem við eigum og sem betur fer hefur aukin þekking fært okkur meiri meðvitund um mikilvægi fyrstu áranna, árin sem enginn man. Það er á ábyrgð okkar fullorðinna að hlúa vel að þeim og sjá til þess að þau hafi sem allra best skilyrði til að vaxa, þroskast og dafna umvafin hlýju og öryggi eins og þau eiga öll svo hjartanlega skilið. Vonast til að sjá ykkur sem flest á þessu mikilvæga borgaraþingi því ég vil hlusta, læra og bæta.

Höfundur er oddviti Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur og fulltrúi í stýrihópi um málefni barna 0-6 ára.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×