Skoðun

Samið um kjara­skerðingu í 4 ár?

Kristófer Ingi Svavarsson skrifar

I

Forystusveit Sameykis hefur samið við ríkið um kjarabreytingar næstu fjögur ár. Samningsdrögin voru kynnt trúnaðarmönnum stéttarfélagsins á net-fundi í morgun. Sérhver félagi á kost á því að kynna sér samninginn á Mínum síðum Sameykis og greiða atkvæði um þau. Atkvæðagreiðslan hófst klukkan 11 í dag, en lýkur klukkan 14 mánudaginn 24. júní.

II.

Í samningsdrögunum er sitthvað harla gott. Til að mynda virðist stytting vinnuvikunnar í 36 klukkustundir vera til frambúðar. Einnig eru hnýttir lausir endar. Þannig verða ákvæði um vaktaauka, orlofsrétt, matarhlé og ýmislegt fleira færð í skýrara horf og á allt að því skiljanlegt mál fyrir alþýðu manna.

III.

Á Landakoti, mínum vinnustað, hefur fólk borið sig illa yfir kjaraskerðingu frá því síðast var samið. Þetta er láglaunafólk, margt af því ungt að árum, sem ekki lætur sig einu sinni dreyma um að eignast þak yfir höfuðið. Verðbólga hefur geisað frá síðast var samið um "hófsama" hækkun á launum þessa fólks og skert kaupgetu þess til muna. Tíðar hækkanir stýrivaxta og aðrir verðbólguvaldar hafa fyrir löngu þurrkað út ávinningin af "hófseminni" síðustu og því átti þetta fólk von á að samið yrði nokkuð myndarlega næst.

IV.

En fjallið tók jóðsótt og það fæddist lítil mús! Laun eiga að hækka um litlar 23.750 krónur á mánuði í ár! Síðan um eitthvað svipað næstu 3 ár. Þessi "hækkun" bætir ekki nema smáræði af kjaraskerðingu síðustu ára. Þetta dugar varla fyrir nokkrum kílóum af ýsu eða þorski, fáeinum lítrum af bensíni og einum gallabuxum (í Costco). Ja, sveiattan!! "Hófsemin" verður varla meiri, auðmýktin og niðurlægingin!

V.

Og enn er samið til fjögurra ára. Í röðum hagfræðinga, og annarra hálaunaðra teknókrata, ríkis, atvinnurekenda og jafnvel stéttarfélaga, ber mikið á bjartsýni um að verðbólgan sé ýmist á undanhaldi, eða hún sé að hjaðna, hún sé jafnvel á niðurleið (bólga á niðurleið?). Enginn launþegi leggur trúnað á þetta hálaunaða atvinnuskraf "sérfæðinga." Alla grunar að þetta sé keyptur málflutningur!

Engin verðbótaákvæði eru í samningnum en gengið út frá þeirri forsendu að stjórnvöld og aðrir atvinnurekendur vinni af einlægni að því að verðbólga hjaðni og vextir lækki. Mikil er trú þín maður! Hér eru fyrirvarar um "forsendubrest" og uppsögn samnings allt of langsóttir og torræðir. Og hver reiknar út verðbólgu? Þar virðist enginn hagfræðingur sammála um forsendur, svo þessi fyrirvari er meira skraut en öryggisráðstöfun.

VI

Með því að samþykkja þessi samnigsdrög myndu Sameykisfélagar lýsa yfir því að þeir hefðu velþóknun á kjaraskerðingu næstliðinna ára og vafra inní nýja fjögurra ára verðbólguþoku! Því væri ég næsta samviskulaus mannleysa ef ég mælti með samþykkt þeirra.

Höfundur er trúnaðarmaður Sameykis á Landakoti.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×