Skoðun

Til hamingju Græn­land

Oddný G. Harðardóttir skrifar

Í dag er þjóðhátíðardagur Grænlands. Á milli Grænlands og Íslands ríkir vinátta og traust og samband þjóðanna er afar verðmætt. Sú var tíð að Íslendingar voru í svipuðum sporum og Grænlendingar hvað varðar stjórn eigin mála og við höfum því sérstakan skilning á hlutskipti þeirra.

Samstarf við aðrar norrænar þjóðir er okkur Íslendingum mikilvægt. Það birtist á ýmsum sviðum. Ríkisstjórnir landanna starfa saman í Norrænu ráðherranefndinni þingmenn í Norðurlandaráði en einnig eiga stéttarfélög og verkalýðsfélög í norrænu samstarfi ásamt hinum ýmsu félagasamtökum, stofnunum og fyrirtækjum.

Hin norrænu ríkin eru fyrirmyndir okkar á flestum sviðum og við leitum til þeirra eftir ráðgjöf við lausn erfiðra þjóðfélagsmála. Ofarlega á dagskrá samstarfsins er lýðræði, jafnrétti, réttarríkið, mannréttindi og friður.

Breyttur heimur

Ég leyfi mér að fullyrða að hlutverk og gildi norræns samstarfs hafi sjaldan verið mikilvægara. Okkar heimshluti stendur á krossgötum með stríði í Evrópu og við botn Miðjarðarhafs. Alþjóðlegar aðstæður breytast og við þurfum að mæta þeim breytingum með mun þéttara samstarfi allra norrænu landanna. Þess vegna ræðum við í Norðurlandaráði nú um stundir tillögur frá norrænum þingmönnum til ríkisstjórnanna um breytingar á Helsingforssamningnum.

Helsingforssamninginn er kallaður stjórnarskrá norræns samstarfs. Breytingatillögur Norðurlandaráðs varða meðal annars varnarmál, samfélagsöryggi, loftslagsmál og sterkari stöðu Grænlands, Færeyja og Álandseyja í samstarfinu.

Forsætisnefndarfundur Norðurlandaráðs verður haldinn í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn þar sem þessi mál verða til umræðu.

Ekkert um okkur án okkar

Norrænu löndin eru átta en ekki fimm eins og stundum er haldið fram. Grænland, Færeyjar og Álandseyjar eru samt ekki með fulla aðild að Norðurlandaráði, Norrænu ráðherranefndinni og sumu öðru norrænu samstarfi og Helsingforssamningurinn miðar við löndin fimm, Ísland, Noreg, Danmörku, Svíþjóð og Finnland.

Grænlendingar hafa gert þá eðlilegu kröfu að eiga sæti við borðið þegar ákvarðanir eru teknar í norrænu samstarfi. Ekkert um okkur án okkar segja þau. Við Íslendingar styðjum nágranna okkar í þessu og tökum undir kröfu þeirra.

Traust og vinátta einkennir norrænt samstarf sem er góður grundvöllur til farsælla lausna á málum sem leiða þarf til lykta. Á þeim grundvelli munum við Íslendingar beita okkur af ábyrgð og með virðingu fyrir áherslum Grænlendinga.

Ég óska grænlensku þjóðinni til hamingju með daginn.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður Norðurlandaráðs.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×