„Í smávegis vegferð að líta á ADHD-ið mitt sem fallegan hlut“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 9. júlí 2024 20:01 Viktoría Kjartansdóttir er viðmælandi vikunnar í Hvað er í töskunni? SAMSETT Söngkonan og fagurkerinn Viktoría Kjartansdóttir er nýflutt heim frá París og vinnur nú við kvikmyndagerð. Hún var að ljúka verkefni sem þriðji aðstoðarleikstjóri í þáttum um Vigdísi Finnbogadóttur sem Vesturport framleiðir. Viktoría er stöðugt á ferðinni og því alltaf með ýmislegt í töskunni sinni en hún opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni?
Það leynist ýmislegt skemmtilegt í tösku Viktoríu. Það er mikil fagurfræði í töskunni hjá Viktoríu.Aðsend Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem þar er að finna? Þegar ég er með töskuna á mér er ég svona Mary Poppins manneskja sem er með allt fyrir alla; nokkrar tegundir af verkjalyfjum, upptakara, plástra, hleðslubanka, teygjur og myntur svo fátt eitt sé nefnt. Ég er með ADHD sem getur verið svolítið íþyngjandi og þá finnst mér stundum yfirþyrmandi að hafa allt þetta dót með mér. Þess vegna skil ég töskuna mína stundum eftir heima og tek lyklana bara með, ef ég er svo heppin að muna eftir þeim. Ég gleymi stundum símanum mínum líka, það er hressandi. Þessa dagana er ég í smávegis vegferð að líta á ADHD-ið mitt sem fallegan hlut en ekki einhvern leiðinlegan galla, taskan mín væri ekki full af spennandi dóti sem hefur komið sér vel fyrir marga nema fyrir ADHD-ið mitt. Þegar kemur að því að velja stærð á tösku þá vandast oft málið og ég held að allar konur þekki það vel. Við sannfærum okkur um að kaupa nýja tösku af því að við erum alltaf að leita að þessari fullkomnu (sem leysir öll okkar farandsgeymsluvandamál). Við bara verðum að kaupa þessa nýju flottu af því að hún er hin fullkomna stærð, teljum við okkur trú um í búðinni, hún er ekki of stór en það kemst samt allt í hana. Ég veit ekki hvað oft ég hef sagt þetta við sjálfa mig en samt vantar mig alltaf nýja tösku. Viktoría reynir að vera viðbúin öllu.Aðsend Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi? Já fallega Contax filmumyndavélin mín sem ég fékk í afmælisgjöf frá kærastanum mínum, Vigni Daða. Mér finnst best í heimi að geta tekið fallegar myndir hvenær sem er. Þegar ég er með myndavél á mér (ekki Iphone) horfi ég allt öðruvísi á heiminn, sé fegurðina í öllu, þá næ ég augnablikum sem símamyndavélin nær ekki. Ýmsar gersemar sem Viktoría hefur fundið á nytjamörkuðum.Aðsend Allt gamalt dót sem ég hef keypt notað á mörkuðum út um allan heim er mér líka sérlega kært og minnir mig á að passa svolítið betur upp á þessa hluti því ég veit að eitt sinn voru þeir keyptir og elskaðir af einhverjum öðrum. Filmumynd sem Viktoría tók í París á dögunum á myndavélina frá Vigni Daða.Viktoría Kjartans Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni? Ég er að vinna í AD deild (aðstoðarleikstjóradeild) í kvikmyndagerð og hef fengið ótrúlegustu fyrirspurnir á setti um hvort ég sé með eitthvað ákveðið á mér. Þá finnst mér svo þægilegt að vera tilbúin með hvað sem er hvenær sem er. Eitt kaótískasta augnablik vinnuferils míns var þegar ein leikkonan fékk flís og það vantaði flísatöng á settið, ég hljóp um allt stúdíóið að leita að flísatöng. Síðan þetta gerðist er ég alltaf með eina slíka á mér. Auk þess er ég alltaf með dagbókina mína í töskunni, ég er búin að ganga með dagbók á mér nánast á hverjum degi í tíu ár og hef klárað svona þrettán stykki. Ég skrifa bara hvað sem er í þær, allt frá textum, ljóðum, teikningum og svo bara yfir í eitthvað persónulegt rugl. Viktoría er dugleg að taka myndir og ferðast. Sömuleiðis er hún alltaf með dagbók á sér.Aðsend Hver er þín uppáhalds taska og af hverju? Ég hoppaði í raun mjög seint á töskuvagninn og skildi ekki af hverju konur eins og amma og mamma voru alltaf að kaupa sér nýjar og nýjar töskur? Mér fannst ekki skipta máli hvaða tösku þú notar heldur fannst mér innihaldið skipta meira máli … „little did I know“. Ég á töskur frá ýmsum merkjum bæði „high end“ og milli merki en uppáhaldsmerkið mitt er Coach. Mér finnst þær svo vel hannaðar og flottar og svo var líka fyrsta svona vandaða taskan mín taskan frá Coach og ég er búin að nota hana endalaust. Núna er nýja hvíta coach taskan mín í miklu uppáhaldi. Ég elska ljósar töskur og töskur með ljósu áklæði því það er miklu léttara að finna hluti í þeim. Auk þess á ég þrjár Longchamp töskur sem ég algörlega elska, finnst þær svo klassískar og fallegar á viðráðanlegu verði. Coach taskan er í miklu uppáhaldi.Aðsend Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu? Já og nei, eins og mér finnst ógeðslega gaman að taka til og raða í töskuna mína er ég alveg jafn fljót að gjörsamlega rústa henni aftur. En því fallegra sem dótið í töskunni er því léttara er fyrir mig að halda henni í reglu. Viktoría reynir að halda fínu skipulagi á töskunum en er jafn fljót að taka til í henni og hún er að rústa því aftur. Aðsend Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna? Hmm, ég er oftast með eina stóra en í henni eru kannski þrjár til fimm mismunandi litlar buddur með alls konar dóti sem þægilegt er að kippa úr töskunni. Þegar ég ferðast um Ísland enda ég samt alltaf með svona tíu töskur, eina fyrir útifötin, eina fyrir húðumhirðuvörur, eina fyrir förðunardót og svo mætti lengi telja. Viktoría er gjarnan með nokkrar töskur til skiptanna.Aðsend Stór eða lítil taska og af hverju? Stór á Íslandi, lítil í útlöndum. En ef það er stór taska eru líklega margar litlar ofan í henni og ef ég er með litla tösku er ég með margar litlar. Þannig að bæði er betra. View this post on Instagram A post shared by Viktoria Kjartansdóttir (@viktoriakjartans)
Hvað er í töskunni? Tíska og hönnun Mest lesið Ilmaðu eins og frambjóðendur: Snorri Másson með sama ilm og Svandís Svavars Lífið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Gellur tóku yfir Gamla bíó Lífið „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Lífið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið „Ekki gera mér þetta“ Lífið Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Bíó og sjónvarp Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Myndir: Svona var baksviðs á kappræðum leiðtoganna Lífið Fleiri fréttir Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Flott klæddir feðgar Fagurfræði: Hvernig förðum við mismunandi húðtýpur? Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira