Maðurinn sem ætlaði að fá lánaðan tjakkinn. Einar Helgason skrifar 9. júlí 2024 06:00 Hún er góð sagan af manninum sem ætlaði að fá lánaðan tjakkinn hjá bóndanum á sveitabænum. Reyndar geri ég ráð fyrir að margir af þeim sem lesa þessar línur hafi heyrt þennan brandara en ég læt hann samt flakka hérna. En það var þannig að það var maður á ferð í bíl sínum eftir fáförnum sveitavegi þegar það sprakk á einu dekki undir bílnum. Nú þegar maðurinn ætlaði að skipta um dekk kom í ljós að engin tjakkur var í bílnum. Nú voru góð ráð dýr en í fjarska sá maðurinn sveitabæ og hann ákvað að ganga þangað til þess að biðja bóndann á bænum að lána sér tjakk. Þetta var um það bil fimmtán mínútna gangur og maðurinn gekk af stað. Eftir að hann hóf gönguna heim að bænum fór hann að brjóta heilan um hvernig viðtökurnar yrði hjá þessum bónda sem þarna bjó. Hvað til dæmis ef hann hataði þetta andskotans Reykjavíkurpakk og það kæmi ekki til greina að hjálpa því á nokkurn hátt? Svo væri líka til í dæminu að hann væri fæddur ruddi og lánaði engum sín verkfæri og segði mönnum bara að fara til fjandans sem bæðu um slíkt. Svo hafði hann líka heyrt að þessir bændur væru á hausnum fjárhagslega og tækju okurverð fyrir allt sem þeir gerðu fyrir aðra, enda sæist það best á verðinu á lambakjötinu um þessar mundir. Þessar og aðrar hugsanaflækjur veltust um í kollinum á okkar manni þegar hann gekk heim að bænum. Og hann var orðin eiginlega alveg kolsjóðandi vitlaus í skapinu þegar hann loks náði heim á hlað á þessum sveitabæ og bankaði hraustlega á útihurðina. Og ekki lagaði það ástandið þegar þessi bóndadurgur var ekkert að flýta sér til dyra þá var suðan komin á alvarlegt stig í okkar manni þegar hann loksins opnaði. Hann horfði á þennan bónda sem ég heyrði um seinna að væri orðlagður fyrir greiðvirkni og gæði og hreytti út úr sér. „Taktu þennan andskotans tjakk og troddu honum upp í rassgatið á þér.“ Ástæðan fyrir því að ég er að rifja upp þennan gamla brandara er sú að mér dettur hann æ oftar í hug þegar ég les pistla eftir Hjört J Guðmundson sem hann birtir á Vísissíðunni. Þar fer þessi ágæti maður hamförum um hvað það yrði skelfilegt fyrir okkur Íslendinga að fara alla leið inn í ESB og hvað við yrðum niðurlægð af því að við erum svo fámenn þjóð. Og það sem Hjörtur á sameiginlegt með manninum sem ætlaði að fá lánaðan tjakkinn að hann á von á skelfilegum viðtökum ef Ísland leitaðist eftir inngöngu í ESB. Hins vegar hefur maðurinn sem vantaði tjakkinn það fram yfir Hjört að hann lagði það á sig að arka af stað þótt hann hafi svo sjálfur skitið upp á bak þarna í restina. En Hjörtur telur það fráleitt að reyna eitthvað í þá áttina að hefja samningaviðræður vegna þess að hann er með þau úrslit á hreinu. Hann þarf ekki annað en draga samningana sem hann geymir í sínu heilabúi fram og þá fer það ekkert á milli mála að þar yrðum við niðurlægð og jafnvel rænd okkar auðlindum. Ég veit reyndar ekki hvort það sé gerlegt að ræna sjávarauðlind sem þegar er búið að stela af venjulegum Íslendingum. Og ég held að Hjörtur viti það fullvel hverjir stóðu fyrir því og hver tekur ekki mark á manni sem bæði er sagnfræðingur og alþjóða stjórnmálafræðingur auk þess er hann sérfræðingur í einhverjum Evrópufræðum. Úff ekki get ég státað mig af því að vera sérfræðingur í neinu nema að keyra sendiferðabíl á sendibílastöð, ég var einu sinni góður í því. En svo kemur líka í ljós að Hjörtur J Guðmundson er launaður blaðamaður hjá Mogganum sem við vitum öll að er áróðurssnepill á framfæri helstu útgerðarisa í Íslensku samfélagi og sömu aðila og stálu sjávarauðlindina okkar. Og það sem kannski er enn merkilegra að Íslensk útgerðafyrirtæki eru þeir aðilar sem hafa mestan hag af því að vera næstum fullgildir meðlimir í Evrópusambandinu. Þar hafa þeir ákveðin tollfríðindi inn á þann stóra markað og þar hafa þeir frelsi til að reka fyrirtæki sem þeir hafa svo sannarlega nýtt sér. Auk þess gátu þau yfirgefið Íslensku krónuna sem er einhver mesti skaðvaldur fyrir venjulegt fólk á Íslandi og hreiðrað um sig í skjóli evrunnar. (Hjörtur fær kannski borgað í evrum fyrir alla áróðurspistlanna.) Nú ætla ég ekki að fara út í það að lýsa því í smáatriðum hvað muni standa í samningum milli Íslands og Evrópusambandsins, enda hef ég ekki hugmynd um það. Þær samningaviðræður munu standa jafnvel í einhver ár og ég ætla að fullyrða að Hjörtur veit ekkert um það heldur hvað þar stendur þótt hann telji sig vita það. Það versta er að það eru eftir einhverjir örfáir bjánar en þarna úti sem trúa því líka. Nú geri ég ráð fyrir því að einhverjir furði sig á því að ég skuli vera að velta þessum hlutum fyrir mér og skrifa þessar línur en ástæðan er einfaldlega þessi. Á minni löngu ævi í Íslensku samfélagi hef ég komst að því að það eru ákveðin öfl í okkar landi sem velta sér upp auðævum sem hægt er að viðhalda með því að halda alþýðu fólks í skefjum. Og það er gert meðal annars með því að koma í veg fyrir að við göngum í Evrópusambandið og tökum upp evru því þá missa peningaöflin tökin sem þeir hafa á fólki með Íslensku krónunni. Eða hvar í veröldinni er það hægt að láta fólk taka lán með þröngum skilyrðum um greiðslugetu sem svo afborganir tvöfaldast eða jafnvel þrefaldast að nokkrum mánuðum liðnum? Mér dettur engin í hug sem gæti staðið fyrir svona gjörningi nema kannski félagsskapur sem heitir Mafía og er ættuð frá Sikiley enda væri ég ekki hissa þótt þeir dauðöfunduðu peningaöflin á Íslandi að búa við þessi gróðatækifæri. Eða finnst fólki það ekkert skrítið að þegar krónan fellur og hinn venjulegi maður þarf að taka á sig auknar byrðar þá græða fjármálafyrirtækin eins og engin sé morgundagurinn Við þurfum ekki annað en að horfa til Færeyja sem tengjast evrunni til þess að vita hvað ég er að meina. Síðan kaupa þessi öfl mann með nógu skrautlega titla til þess að skreyta sig með, sjálfsagt í þeirri von að hann verði trúverðugri, til þess skrifa á nokkurra daga fresti áróðurspistla í þeirri von að viðhalda skepnuskapnum. Kannski má þakka fyrir að sá sem ritar þessar línur er kurteis að eðlisfari og lætur ekki allt flakka. En ég get ekki af því gert að mér dettur fyllilega í hug að þessir áróðurspistlar eigi að fara á svipaðan stað og manninum fannst að tjakkurinn ætti heima. Höfundur var sérfræðingur í því að keyra sendiferðabíl og er auk þess með stýrimansréttindi. Hann er líka það fróður að hann veit til þess að fólk í löndunum sem við viljum bera okkur saman við getur tekið lán þar sem það veit upp á hár hvað afborguninn er há allt til enda lánstímans. Ef það breytist á lánstímanum lánveitanda í hag þá er það sakamál. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ráðherrann Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Félag áhugamanna um löggæslu Agnes Ósk Marzellíusardóttir Skoðun Helvítis Píratarnir Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Innflytjendur eru blórabögglar Achola Otieno Skoðun Að refsa eða treysta VG? Finnur Ricart Andrason Skoðun Vók er vont – frambjóðandi XL kærður til lögreglu Kári Allansson Skoðun Er „woke-ismi“ genginn of langt? Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir Skoðun Eldra fólk þarf Jóhann Pál sem félagsmálaráðherra – nema kannski þeir auðugustu Viðar Eggertsson Skoðun Tryggjum Svandísi á þing Hópur stuðningsfólks Svandísar Svavarsdóttur Skoðun Höldum okkur á dagskrá Hópur fólks innan íþróttahreyfingarinnar Skoðun Skoðun Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Að refsa eða treysta VG? Finnur Ricart Andrason skrifar Skoðun Innflytjendur eru blórabögglar Achola Otieno skrifar Skoðun Bað- og búningsklefar okkar kvenna Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Stórkostleg tímaskekkja Sigrún Perla Gísladóttir skrifar Skoðun Vinstri græn - þrátt fyrir þverpólitíska ríkisstjórn Aðalbjörg Ísafold Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Félag áhugamanna um löggæslu Agnes Ósk Marzellíusardóttir skrifar Skoðun Kosningalimran 2024 Arnar Ingi Ingason,Freyr Snorrason skrifar Skoðun Viðreisn ætlar að forgangsraða – nýta skattfé miklu betur Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sigrar vinnast – spár bregðast Þorvaldur Örn Árnason skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn? Eva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Pólitískar ofsóknir í aðdraganda Alþingiskosninga Eldur S. Kristinsson skrifar Skoðun Talk about timing – degi fyrir kjördag Yngvi Sighvatsson skrifar Skoðun Hjarta og sál Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun ESB andstæðingar blekkja Íslendinga Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn: Fyrir budduna þína og framtíðina Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Eldra fólk þarf Jóhann Pál sem félagsmálaráðherra – nema kannski þeir auðugustu Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Að mynda ríkisstjórn - skipulagt val til vinstri Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Viðreisn: öfgalaus nálgun fyrir öfgalaust samfélag Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Kleppur er víða Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar Skoðun Að geta lesið sér mennsku til gagns Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Börðust afar okkar til einskis í Þorskastríðinu? Hugleiðing um ESB Haukur Ingi S. Jónsson skrifar Skoðun Á ferð um Norðvesturkjördæmi Arna Lára Jónsdóttir,Hannes Sigurbjörn Jónsson,Jóhanna Ösp Einarsdóttir,Magnús Eðvaldsson skrifar Skoðun Stöndum vörð um íslenska fjölmiðla Óli Valur Pétursson skrifar Skoðun Lögfestum félagsmiðstöðvar Guðmundur Ari Sigurjónsson,Friðmey Jónsdóttir skrifar Skoðun Flokkar sem vara við sjálfum sér Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hver bjó til ehf-gat? Sigríður Á. Andersen skrifar Skoðun Lausnir eða kyrrstaða í húsnæðismálum Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Aðventan – njóta eða þjóta? Hrund Þrándardóttir skrifar Skoðun Við kjósum blokkir Kjartan Valgarðsson skrifar Sjá meira
Eldra fólk þarf Jóhann Pál sem félagsmálaráðherra – nema kannski þeir auðugustu Viðar Eggertsson Skoðun
Skoðun Eldra fólk þarf Jóhann Pál sem félagsmálaráðherra – nema kannski þeir auðugustu Viðar Eggertsson skrifar
Skoðun Börðust afar okkar til einskis í Þorskastríðinu? Hugleiðing um ESB Haukur Ingi S. Jónsson skrifar
Skoðun Á ferð um Norðvesturkjördæmi Arna Lára Jónsdóttir,Hannes Sigurbjörn Jónsson,Jóhanna Ösp Einarsdóttir,Magnús Eðvaldsson skrifar
Eldra fólk þarf Jóhann Pál sem félagsmálaráðherra – nema kannski þeir auðugustu Viðar Eggertsson Skoðun