Bandaríkjamenn ekki í vandræðum með Jókerinn og félaga Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. júlí 2024 18:12 Nikola Jokic og LeBron James berjast um frákast í leik dagsins. Pool/Getty Images Bandaríkin unnu öruggan 26 stiga sigur er liðið mætti Serbíu í fyrstu umferð riðlakeppninnar í körfubolta á Ólympíuleikunum í París í dag.
Serbar byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu tíu af fyrstu tólf stigum leiksins. Bandaríkjamenn vöknuðu hins vegar fljótt til lífsins og náðu fimm stiga forskoti áður en fyrsta leikhluta lauk. Bandaríska liðið jók forskot sitt jafnt og þétt og náði mest ellefu stiga forskoti í öðrum leikhluta. Serbar náðu áhlaupum, en Bandaríkjamenn héldu forystunni út hálfleikinn og leiddu með níu stigum þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan 58-49. Svipaða sögu er að segja af síðari hálfleik. Serbar héldu í við Bandaríkin, en bandaríska liðið hleypti Serbum aldrei of nálægt sér. Gott áhlaup Bandaríkjamanna í lok þriðja leikhluta gerði raun út um leikinn. Bandaríska liðið hélt Serbum í skefjum í lokaleikhlutanum og niðurstaðan varð að lokum 26 stiga sigur, 110-84. Kevin Durant var stigahæsti maður vallarins með 23 stig fyrir Bandaríkin, en á eftir honum kom LeBron James með 21 stig, sjö fráköst og níu stoðsendingar. Í liði Serba var Nikola Jokic atkvæðamestur með 20 stig fimm fráköst og átta stoðsendingar.
Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sport Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Í beinni: Ísland - Úkraína | Mikilvægur leikur í Innsbruck Handbolti Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Enski boltinn „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Körfubolti Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Fótbolti Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Fótbolti Fleiri fréttir Maté hættir með Hauka Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Jón Axel frábær í sigri toppliðsins „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Landsliðsmenn Stjörnunnar skoruðu saman 53 stig í fyrri hálfleik Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Þór Þ. 124-82 | Þórsarar kjöldregnir í Garðabænum Pavel um leikjamet Óla Óla fyrir Grindavík: „Ég reyndi að eyðileggja þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Sjá meira