Skoðun

Að vera hin­segin, kynsegin, trans

Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Það er árið 2024 við ættum að vera farin að ná þessu að það eru ekki allir eins, hvað væri svosem gaman að því.

Ég er nú bara gömul kelling út á landi, ég skil ekki öll þessi hugtök og nýju orð, en þau trufla mig ekki, né hræða.

Verið öll velkominn á ykkar forsendum og vonandi hamingjusöm.

Ég átti vinkonu sem kom útúr skápnum 1984, þegar hún sagðist hafa fundið ástina spurði ég hver er sá lukkulegi? hún svarað sú lukkulega er .... ég óskaði henni til hamingju og spurði hvenær maður fengi að hitta hana. En ekki tóku alli vinir hennar þessu vel, stundum fékk sendiboðin kynnhest fyrir að segja svona um vinkonu þeirra, fjölskyldan tók þessu mis vel.

Þetta var 1984 erum við ekki komin lengra 40 árum seinna?

Þegar ég heyrði fyrst í Pál Óskari í útvarpinu spurði ég hver hann væri og fékk þau svör að hann væri bróðir Diddúar og hann væri hommi, ég man enn hvað mér fannst þetta undarlegt að taka það sérstaklega framm að hann væri hommi.

Vertu þú sjálfur, gerðu það sem þú vilt. Vertu þú sjálfur, eins og þú ert. Láttu það flakka, dansaðu í vindinum. Faðmaðu heiminn, elskaðu. Farðu alla leið, söng Helgi Bjöss í SSSól árið 1993

Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað?

Hvað verður um mig ef það sem ég er bölvað og bannað? söng Páll Óskar 2008 og syngur enn, enda full þörf á.

Það er kjarni málsins við verðum að fá að vera við sjálf, eins og við erum, það á engin að ákveða það fyrir okkur, neyða okkur eða hræða svo við þorum ekki að sýna okkur eins og við erum.

Verum tillitsöm og umburðarlynd, sjáum gleðina og hamingjuna, frelsið er yndislegt.

„Þau“ eru ekki hættuleg, þetta er ekki smitandi, ja jú kanski gleðin, gleðin yfir að vera sá sem maður er, gleðin yfir ástinni, Gleðin öll þessi gleði og Gleðiganga núna um helgina.

Ég vona að sem flestir mæti til að fagna fjölbreytileikanum, án hans er allt svo litlaust.

Og þið sem geltið að öðru fólki farið til læknis, hundaæði er lífshættulegt og skammist ykkar svo, við hvað eruð þið hrædd?

The Kinks - Lola 1970

Höfundur er gömul kelling út á landi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×