Skoðun

Þeir borga sem nota!

Tómas Kristjánsson skrifar

Fá orð fá jafnoft að hljóma í jarmi sjálfstæðismanna um hinn digra tekjustofn sem ökutækjaeigendur geta verið.

Sögustund. Frá 2018 hafa engir skattar tengdir notkun ökutækja verið eyrnamerktir vegakerfinu. Ekki einu sinni hið margumtalaða kílómetragjald sem tekur ekki tillit til þyngdar eða mengunar ökutækja, er rukkaður eftir ólöggiltum mæli og er auk þess rukkaður fyrir akstur á vegakerfi sem ríkið sér ekki um. Í það heila hörmulegt framtak þegar horft er til þess að útgjöld til vegamála hafa dregist saman sl. áratug, ef tekið er tillit til verðbólgu en á sama tíma hefur eyðsla ríkisins aukist um 100% og þar með skattpíning á almenning.

Einfaldir útreikningar hafa líka sýnt okkur vaxandi uppbyggingarskuld á þjóðvegakerfinu í kjölfar áratugalangrar öfgaskattheimtu af notkun ökutækja, sem ekkert sýnir að skili sér í þjóðvegakerfið.

Í nýlegri stjórnmálaályktun flokksráðsfundar sjálfstæðisflokksins, dagsett 1. september 2024, kemur fram að: „Gjöld af umferð til að fjármagna samgöngumannvirki skulu miðast við notkun, samhliða niðurfellingu vörugjalda af bifreiðum og eldsneyti“.

Þetta er sama orðræða og mátti finna í frumvarpi þáverandi fjármálaráðherra sem varð að lögum um kílómetragjald og á vefsíðu sem ráðuneytið heldur úti vegna skattheimtunnar. Nú hefur þetta smitast inn í borgarstjórn Reykjavíkur því brotinn sjálfstæðisflokkur þar á bæ fann sig knúinn til að leggja fram bókun vegna samgöngusáttmála með sömu orðum, að því er virðist án þess að átta sig á að þessi gjöld, eða aðrir skattar af notkun ökutækja, hafa aldrei skilað sér til sveitarfélaga.

Eftir sem áður er tískumáltæki flokksins í dag; „Þeir borga sem nota!“, sama orðræðuaðferð og þegar ótengd atriði eru skotin niður í skynsamri umræðu með orðunum „hugsið um börnin!“. Líkt of hin ofnotaða orðræðuaðferð þá er þetta bergmál úr valhöll farið að hljóma í fleiri og fleiri tilfellum þegar gerð er atlaga að tekjustofni flokksins sem ekki kann með peninga að fara.

Höfundur er formaður Rafbílasambands Íslands og áhugamaður um umhverfismál og skynsama skatta.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×