Skoðun

Snúum hjólunum á­fram

Andrés Ingi Jónsson skrifar

Á sama tíma og ríkisstjórninni gengur sífellt verr að ná árangri í loftslagsmálum kemur á óvart að annað árið í röð þurfi að berjast fyrir stuðningi við hóp fólks sem hefur tekið sér mikilvægt hlutverk í þágu grænni og betri framtíðar. Fjármálaráðherra kom fram með það í vikunni að niðurfelling á virðisaukaskatti af reiðhjólum eigi að hætta um áramótin. Þetta voru kaldar kveðjur í Evrópsku samgönguvikunni, þegar hefði farið betur á því að ríkisstjórnin teiknaði upp leiðir til að auka stuðning við hjólreiðafólk og annað fólk sem notar virka samgöngumáta.

Stuðningur sem virkar

Það fer varla fram hjá neinum að undanfarin ár hefur átt sér stað hjólabylting. Þúsundir hafa byrjað að nota reiðhjól og rafmagnsreiðhjól til að koma sér á milli staða. Hluti af hvatanum eru réttar ákvarðanir sem hið opinbera hefur tekið — sveitarfélögin sem undanfarin ár hafa skipulagt og byggt þétt net hjólastíga og ríkið með því að fella niður hluta virðisaukaskatts af hjólum.

Með réttu ætti ríkisstjórnin að þakka hjólreiðafólkinu sinn þátt í þeim árangri sem náðst hefur í loftslagsmálum á Íslandi á síðustu árum. Með því að nota hjól í stað fólksbíls nýtur fólk ekki bara heilsubótar og ferska loftsins, heldur dregur líka úr álagi á samgöngukerfið, minnkar mengun og dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Ívilnanir fyrir kaup á reiðhjólum og rafmagnshjólum skila augljósum árangri. Þær hafa verið mjög áhrifarík hvatning fyrir mörg til að velja umhverfisvænni ferðamáta, og því stórundarlegt að stjórnvöld skuli ekki vilja halda slíkum hvötum gangandi.

Sparað þar sem síst skyldi

Þegar hugmyndir um að fella niður stuðninginn voru ræddar í fyrra fauk í umhverfisráðherra. „Það er ekki bannað að spara í ríkisrekstri …“ sagði ráðherrann sem virtist vera metnaðarfyllri fyrir því að skera niður á fjárlögum en að skera niður í losun. Sem betur fer hafði þingið vit fyrir ráðherraliðinu í fyrra og framlengdi hjólastuðninginn um eitt ár.

„Ríkissjóður verður auðvitað líka að fá tekjur,“ sagði fjármálaráðherra um þetta í vikunni, eins og væri um gríðarlegt tekjutap að ræða. Upphæðirnar eru bara alls ekki stórar á skala ríkisfjármála. Á þessu ári er reiknað með að 550 milljónir króna fara í ívilnun fyrir kaup á hjólum, en til samanburðar er tvöföld sú upphæð eyrnamerkt niðurgreiðslu á losun flugfélaga á næsta ári. Þessi mismunur sýnir skort á metnaði í loftslagsmálum og undirstrikar hvernig ríkisstjórnin forgangsraðar fyrirtækjum frekar en einstaklingum hvenær sem hún getur.

Hjálpum fólki að hjálpa samfélaginu

Nú, meira en nokkru sinni fyrr, þurfum við að taka ákvarðanir sem byggja á framtíðarsýn í loftslagsmálum, sjálfbærni, og umfram allt - umhverfisvernd. Með því að styðja við fólkið sem nýtir sér umhverfisvænni ferðamáta getum við saman skapað samfélag sem virðir og verndar náttúruna, fyrir okkur og komandi kynslóðir.

Framundan er barátta fyrir því að ríkið standi áfram við bakið á fólkinu sem er tilbúið til að taka virkan þátt í að breyta samfélaginu í þágu loftslagsins. Það gerum við ekki bara með innantómum orðum heldur með raunverulegum lagabreytingum. Við Píratar munum beita okkur fyrir því að hjólabyltingin haldi áfram að vaxa, eins og við gerðum með góðum árangri í fyrra. Því við vitum að þannig styðjum við grænna og skemmtilegra samfélag.

Höfundur er þingmaður Pírata.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×