Skoðun

Að eldast – ertu undir­búin?

Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir, Lára María Valgerðardóttir og Magnús E. Smith skrifa

Það fá ekki allir tækifæri til að eldast. Við, sem það gerum vitum að með aldrinum kemur þörf fyrir stuðning, umönnun og hjúkrun, hvort sem hún kemur frá aðstandendum eða þeim stofnunum sem samfélagið hefur byggt upp. En spurningin er: Eru sjúkrahúsin, hjúkrunarheimilin og heilsugæslan í landinu tilbúin til að mæta þessum þörfum?

Stjórnvöld hafa sett fram stefnu um að fólk eigi að búa heima eins lengi og kostur er. En til þess þarf öflug heimahjúkrun og þjónusta að vera til staðar. Sjúkraliðar sinna kjarnastarfsemi heimahjúkrunar og það liggur fyrir að margt vantar í þessum efnum. Allir þeir sem hafa innsýn í starfsemi heimahjúkrunar vita að þjónustan er langt frá því að vera nægilega öflug til að mæta vaxandi þörfum.

Fjöldi hjúkrunarrýma – ósamræmi við raunveruleikann

Í dag er um 3.000 hjúkrunarrými á landinu. En það er fyrirséð að þau duga skammt. Á næstu 25 árum mun fjöldi eldri borgara tvöfaldast og næstu fimm árin mun þeim fjölga um 20%! Margir þeirra eru í elsta aldurshópnum sem þurfa mestu þjónustuna. Samkvæmt nýjustu skýrslu heilbrigðisráðuneytisins þurfa eldri borgarar að bíða að meðaltali 77-117 daga eftir hjúkrunarrými. Hvað finnst okkur um það?

Heilbrigðismál efst á blaði – engin aðgerðaáætlun

Nýleg skoðanakönnun sýnir að almenningur telur heilbrigðismálin vera mikilvægustu mál þjóðarinnar. Eldri borgarar og heilbrigðisþjónusta voru efst á lista. Þetta er ákall þjóðarinnar um aðgerðir. Þjóðin er að biðja stjórnvöld um að forgangsraða þessum málum og grípa til tafarlausra aðgerða.

Það er ekki nema ár til næstu alþingiskosninga. Nú er tíminn fyrir stjórnmálaflokkana að setja öldrunar- og heilbrigðismál í forgang. Við getum ekki beðið lengur. Ef við grípum ekki til alvöru aðgerða núna, mun öldrunarþjónustan og heilbrigðiskerfið hrynja undan álagi þegar hópur eldri borgara stækkar. Það er ekki bara þeirra mál, -heldur okkar allra.

Verður þú hluti af lausninni?

Stjórnvöld hafa ekki lengur tíma til að fresta þessum málum. Þessi hópur, sem þú, kæri lesandi, munt að öllum líkindum verða hluti af, á betra skilið. Er ekki kominn tími til að sýna þessum málaflokki þá virðingu sem hann á skilið?

Höfundar eru í stjórn Sjúkraliðafélags Íslands




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×